«

»

Molar um málfar og miðla 495

…. á því hafi orðið engin breyting, sagði fréttamaður  Ríkisútvarps í sexfréttum (06.01.2011). Varla  getur  þetta orðalag  talist til fyrirmyndar. Betra hefði verið að  segja: Það hafi ekki breyst , eða á því hafi ekki orðið breyting.

 Innanríkisráðherra talaði í kansellístíl í fréttum Stöðvar tvö (06.01.2011), þegar hann talaði um að búa til  sjálfbærrar einingar sem  væru sjálfsaflandi. Þetta var í  tengslum   við nýja skattlagningu á  bifreiðaeigendur ,sem  gengur undir nafninu vegtollar. Pólitíkusar vilja  kalla vegtolla  notendagjöld. Ruglið! 

  Enn einu sinni viku fréttir Ríkissjónvarpsins fyrir boltaleik (07.01.2011). Íþróttadeildin er einvaldur Efstaleitisins.

  Svolítið skondið mismæli mátti heyra í áttafréttum Ríkisútvarpsins (07.01.2011).  Þar var verið að segja  frá  afleiðingum sölu og dreifingar á díoxín-menguðu fóðri. Í inngangi fréttarinnar var sagt  að bönnuð hefði verið sala  á afurðum frá 4700 kúm. Í fréttinni kom hinsvegar fram að  um var að  ræða afurðir frá 4700 búum, sem er   svolítið annar handleggur. Þetta var auðvitað ekki leiðrétt. Slíkt heyrir til undantekninga  í Efstaleiti.

  Stundvísi í dagskrá er metnaðarmál hjá útvarps- og sjónvarpsstöðum. Þau mál  eru í góðu lagi  hjá Rás eitt og  Rás  tvö  í Efstaleitinu. Hjá  Ríkissjónvarpinu er kæruleysið og tillitsleysið  við  áhorfendur/hlustendur algjört. Oft er lítið sem ekkert að marka  auglýsta  dagskrá.  Endursýning þátta er færð fram  frá  auglýstum tíma og oftar en ekki  er  dagskráin langt á eftir  áætlun. Í gærkveldi  (föstudagskvöld ,07.01.2011) hófst   sýning  Barnabyþáttarins  tíu mínútum síðar en auglýst var. Það er einfalt og útlátalaust  fyrir þann sem  stjórnar útsendingu að  skrifa  stutta tilkynningu á skjáinn um seinkun dagskrár. Þetta gera   sjónvarpsstöðvar sem hafa metnað og sýna  viðskiptavinum sínum kurteisi. Það  tíðkast ekki hjá Ríkissjónvarpinu.

   Loksins , loksins gæti maður  sagt.  Ríkisútvarpið  boðar  nú sýningu átta þátta um íslenska   söngvara. Það er lofsvert og þó fyrr  hefði verið. Fyrsti þátturinn með okkar  frábæru Diddú, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur,  verður   annað kvöld. Tilhlökkunarefni.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>