«

»

Molar um málfar og miðla 497

 Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú,  er stórkostleg söngkona,  –  og manneskja. Þáttur  Jónasar Sen um  hana í Ríkissjónvarpinu var  prýðilegur og lofar góðu um þá sjö þætti í þessari þáttaröð,  Átta raddir, sem við eigum eftir að sjá og heyra.  Það var rétt, sem Margrét  Bóasdóttir sagði, að  Sjónvarpið gerði mikið  fyrir  sönglistina á sínum fyrstu árum.  Söngur og  sígild tónlist hafa  undanfarin ár verið hornrekur í Efstaleitinu í mörg herrans ár. Því þarf að breyta.  Vonandi er þessi þáttaröð merki um að nú örli á breyttri  hugsun þar efra.

  Sjómenn voru í engu hátíðarskapi, sagði  fréttamaður Stöðvar  tvö (09.01.2011) og  í þróttafréttamaður Ríkissjónvarpsins  réri á sömu mið og sagði: Honum urðu á engin mistök.  Betra hefði verið: Sjómenn voru ekki  í hátíðarskapi  og  hann gerði engin mistök, eða honum urðu ekki á nein mistök.

      Skrítið  að fréttamenn ( Stöð tvö 09.01.2011)  skuli  kalla  þingmanninn Lilju Mósesdóttur , Lilju Móses. Eiginlega ekki bara skrítið, heldur asnalegt.

Viðskiptavinir Ríkissjónvarpsins eru ýmsu vanir,  þegar kemur að röðun efnis í dagskrár. Öll þjóðin horfir á Áramótaskaupið. Það er sá þáttur í Ríkissjónvarpi,sem allra mest er horft á. Svo er  Skaupið endursýnt, sem er  sjálfsagt mál. En það átti ekki að gerast á  besta tíma á laugardagskvöldi. Það er ekki tíminn fyrir endursýnt efni. Ekki einu sinni Áramótaskaup.

   Þeir sem kaupa  erlent  efni  til sýningar í  Ríkissjónvarpinu leggja sig í framkróka  um að  finna  rusl og  dellumyndir til að sýna  á besta  tíma kvölds á  föstudögum og laugardögum. Því hefur verið haldið fram við Molaskrifara að þetta efni sé keypt  eftir vigt á  útsölum  vestanhafs. Það er nú varla  satt. En það  er með  ólíkindum hvað innkaupastjórar eru naskir á að  finna  lélegar amerískar bíómyndir til  sýna okkur  um helgar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>