Molaskrifari velti svolítið fyrir sér orðunum fjölnota íþróttahús og komst að þeirri niðurstöðu að nóg væri að tala um íþróttahús. Sleppa mætti orðinu fjölnota. Ekki er þetta stórmál. En Molaskrifara fannst taka í hnúkana, þegar hann í hádegisútvarpi Ríkisútvarpsins heyrði fréttamann segja: Yfirbyggð fjölnota íþróttahús hafa risið í nokkrum sveitarfélögum á undanförnum árum.? Yfirbyggð fjölnota íþróttahús ? Eru til óyfirbyggð hús ? Er það ekki þakið, sem gerir fjóra veggi að húsi? Eru þá íþróttavellir óyfirbyggð íþróttahús? Þarna skortir eitthvað á skýra hugsun, að ekki sé meira sagt.
„Við tókum mikla áhættur og þeir borguðu sig,“segir Seang Chau, (mbl.is 11.01.2011). Mogginn bregst ekki. Svolítið meira um Moggann. Í Morgunblaðinu sama dag er frétt um að síðustu endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsstöðu Íslands sé lokið. Flestum þykir þetta líklega áfangi og talsverð frétt. Eindálkur inn við kjöl á annarri síðu er fréttamat Moggans. Moggi bregst heldur ekki í því að gera lítið úr því sem gengur vel eða sæmilega hjá núverandi stjórn, þegar flórinn er mokaður eftir ástmegi blaðsins. Á fjórðu síðu er frétt um deilur innan VG. Þar er enn hlúð að því sem Moggi kallar „órólegu deildina“ og notar gæsalappir til að gefa kynna að kannski sé þetta alls ekki réttnefni.
Í fréttum Stöðvar tvö var (09.01.2011) ítrekað talað um öryrkjabótakerfið. Til þessa hefur þetta verið kallað örorkubótakerfið og er ástæðulaust að breyta því.
Enskuslettur vaða nú uppi í auglýsingum í Ríkissjónvarpinu. Þar er (09.01.2011) talað um að smæla framan í heiminn og spurt: Ertu dídjei (dj) ? Þetta dídjei er ensk skammstöfun (disc jockey), plötusnúður ( fínt orð). Skammstöfunin dj… á íslensku þýðir hinsvegar allt annað (djöfull). Þegar auglýsingapeningar eru annarsvegar lætur Ríkisútvarpið okkar málvöndun lönd og leið. Það er miður.
Í ágætu rabbi um daglegt mál á Rás eitt (10.01.2011) var nefndur til sögunnar Sigurjón á Álafossi í tengslum við orðið værðarvoð ( frábært orð) sem hann notaði um ullarteppin ágætu frá Álafossi. Bæði umsjónarmaður og Aðalsteinn Davíðsson cand. mag. sögðu Sigurjón í Álafossi og áttu þá við verslunina, sem lengst af var á horni Þingholtstrætis og Bankastrætis. Sigurjón á Álafossi finnst Molaskrifara betra. Hann var alltaf fremur kenndur við staðinn en verslunina. Sigurjón var snjall auglýsingamaður. Veit ekki betur en hann hafi smíðað slagorðið: Kaupirðu góðan hlut , þá mundu hvar þú fékkst hann. Þegar honum gekk illa að selja aðgang að danspalli á útiskemmtun á Álafossi er sagt að hann hafi kallað: Næsti hálftími verður þrjú kortér. Snjall sölumaður Sigurjón.
Íþróttadeild Ríkissjónvarpsins er ótrúlegt apparat. Nú er byrjað að sýna frá amerískum fótboltaleikjum í fréttum. Sú íþrótt er ekki iðkuð á Íslandi og þeir eru örugglega ekki margir sem kunna leikreglurnar til hlítar í þessari íþrótt. Ólíklegt er að nokkur áhugi sé hér á landi fyrir þessu efni. Ákvörðun hefur greinilega verið tekin í Efstaleiti um að troða þessu ofan í kok áhorfenda og skapa spurn eftir nýrri íþróttagrein, nýju efni.
Í Molum hefur áður verið vikið að óþolandi óstundvísi í dagskrá Ríkissjónvarpsins. Hinn prýðilegi þáttur um Diddú, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (09.01.2011) byrjaði fimm mínútum seinna en auglýst var. Þetta óþarfi. Þetta er óvirðing við áhorfendur og subbuskapur. Það er enginn vandi fyrir þá sem stjórna dagskránni að virða tímamörk. Það er til dæmis gert á Rás eitt. En til þess þarf vönduð vinnubrögð og metnað til að gera vel. Til samanburðar skal nefnt að listaþáttur þáttur NRK2 Hovedscenen þetta sama kvöld var auglýstur klukkan 2010. Hann hófst á mínútunni klukkan 2010.
Skildu eftir svar