«

»

Molar um málfar og miðla 513

Batnandi fólki er best að lifa. Seinni fréttum Ríkissjónvarps seinkaði um 12 mínútur í gærkveldi.  Tilkynning var sett á  skjáinn  um klukkan  tíu um seinkunina  og  Bogi ,sem las fréttirnar, baðst afsökunar á seinkuninni. Gott mál.  Vonandi verður haldið áfram að sýna  áhorfendum  þá kurteisi að tilkynna og   biðjast afsökunar, þegar dagskrá fer úr skorðum. Hinsvegar má  líka viðra þá skoðun hvort Kastljósið var ekki aðeins of langt.

  Valinkunnur  Sunnlendingur hafði samband við Molaskrifara og lýsti vanþóknun á  nafni  hins nýja gufubaðs á Laugarvatni, sem á að heita  Fontana.  Hann var þeirrar skoðunar, að þessi nafngift  væri óþörf. Nota ætti orðið gufubað. Undir það tekur Molaskrifari. Á þetta hefur líka verið bent í athugasemdum við Mola.   Einn af aðstandendum fyrirtækisins sagði í  sjónvarpi, að  orðið  fontana  væri latneska.  Venjulega orðið yfir  það ágæta  tungumál, sem enginn talar lengur, er  latína. Ekki finnur molaskrifari  orðið fontana í þeirri latnesku  orðabók, sem  honum er  tiltæk. Orðið fontana  er hinsvegar til í ítölsku og   þýðir lind  eða brunnur, – hefur ekkert með gufu að gera. Fontana di trevi er einn frægasti  gosbrunnur Rómaborgar. Þar er ekki vitað til að sé gufubað.  Það er hárrétt,sem Halla Sverrisdóttir   sagði í  athugasemdum (Molar 512), – nafnið á  nýja  gufubaðinu hljómar eins og nafn á vondum gosdrykk !

  Í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna (24.01.2011) varð mönnum  tíðrætt um þroska.  Talað var um að þroska efni kjarasamninga og að mál  væri þroskað. Miður gott orðalag. Af hverju ekki gera kjarasamning ? Þá  kom og  við sögu orðatiltækið  á ársgundvelli.  Dugað  hefði prýðilega að segja á ári.

 Molaskrifari veltir því fyrir sér hvort   Rás  eitt  í Ríkisútvarpinu hafi ekki aðgang að  hljóðritunum annarra píanóleikara en Gunnars Gunnarssonar, þegar um  er að  ræða tónlist af léttara tagi. Ekki það að hann sé ekki góður píanóleikari. Vart líður sá  dagur að við heyrum ekki í þessum  ágæta tónlistarmanni, en  við eigum marga, marga fleiri, sem sjaldan eða aldrei  fá að njóta sín á öldum ljósvakans í Rás eitt. Hvað veldur?

  Umsjónarmaður   morgunútvarps Rásar tvö  (25.01.2011) ræddi niðurskurð  hjá  tónlistarskólum í Reykjavík og  spurði  hvort ætti að ganga fram af  tónlistarskólunum.  Hann átti sennilega við hvort  ætti að ganga frá  tónlistarskólunum. Gera út af við þá.  Gera þeim ókleyft að starfa. Að ganga fram af einhverjum er að  ofbjóða einhverjum með  framkomu  eða tali.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>