Morgunblaðið fetar dyggilega í fótspor gamla kommúnistablaðsins, Þjóðviljans. Minnisstætt er að Þjóðviljinn leitaðist jafnan við að birta sem verstar og hallærislegastar myndir af pólitískum andstæðingum sínum. Einkum Bjarna Benediktssyni og í nokkrum mæli Jóhanni Hafstein. Nú leikur Moggi þennan sama leik gagnvart Jóhönnu Sigurðardóttur. Svona gera pólitískir sneplar, ekki alvöru dagblöð.
Athygli vekur (27.01.2011) að næstum fjórðungur leiðara Morgunblaðsins er tilvitnun í Hjörleif Guttormsson. Hjörleifur hefur aldeilis ekki átt upp á pallborðið hjá Morgunblaðinu í áranna rás. Hann og fleiri gamlir kommúnistar eru nú ástmegir Morgunblaðsins. Það er af sem áður var.
Úr mbl.is (25.01.2011): Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að stjórnvöld geri þinginu grein fyrir því hvernig hún hyggist bregðast við fréttum þess efnis að Hæstiréttur hafi ógilt kosningar til stjórnlagaþings. Hún stjórnvöld?
Úr mbl.is (25.01.2011). Hann er lífsseigur ársgrundvöllurinn: … þar sem vagnar Stætó bs. eiga í hlut, fækkað um nærri helming á ársgrundvelli, eða um 48%.
Úr mbl.is (25.01.2011): Að sögn slúðurpressunni vestanhafs yfirgáfu margir myndina áður en henni lauk … seint verður sagt , að þessi setning sé skriffinnum Morgunblaðsins eða ábyrgðarmönnum blaðsins til mikils sóma. Það er verið að reyna að segja okkur, að slúðurblöð vestanhafs hafi greint frá því, að margir hafi farið út áður en sýningu tiltekinnar kvikmyndar lauk.
Frétt dv.is (26.01.2011) um sjóslys fyrir 66 árum er dæmi um afar óvönduð vinnubrögð. Þar er íslenskur togari ýmist kallaður Egill rauði eða Eiríkur rauði. Togarinn hét Egill rauði og var frá Neskaupstað. Talað er um áhafnarmeðlimi en ekki skipverja. Sagt er að togarinn hafi farist ekki fjarri landi, en hann strandaði undir undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp og brotnaði í tvennt. Fimm sjómenn drukknuðu á strandstað. Tuttugu og níu var bjargað, sumum af sjó öðrum frá landi. Aðstæður voru fádæma erfiðar. Mikið björgunarafrek. Tveir breskir togarar fórust í sama veðri undan Vestfjörðum. Með þeim drukknuðu fjörutíu sjómenn. Þá segir í fréttinni að þessi hörmulegu sjóslys hafi orðið 26. janúar 1955 eða fyrir 66 árum. Og reikni nú hver fyrir sig. (Þetta var reyndar leiðrétt er leið á morguninn.) Betra er að sleppa því að rifja upp liðna atburði en að gera það með þessum hætti. Molaskrifari gerir ekki ráð fyrir að þessi frétt hafi glatt Reyni ritstjóra og skipstjóra að vestan.
Skildu eftir svar