«

»

Árás Morgunblaðsins

 Enn ræðst Morgunblaðið að embættismönnum utanríkisþjónustunnar í nafnlausum leiðara. Enn færir  blaðið í málflutningi  sig  nær  hinu gamla  málgagni íslenskra kommúnista , Þjóðviljanum , þegar hann var sem verstur.  Morgunblaðið beinir í dag spjótum sínum að  Stefáni Hauki Jóhannessyni aðalsamningamanni Íslands í aðildarviðræðunum við  Evrópusambandið og   leiðarahöfundur  beitir orðbragði  götustráks. Gamli Þjóðviljinn uppnefndi líka   þá sem hann  taldi andstæðinga sína. Þeir sem þekkja  Stefán Hauk vita að hann er  vandaður embættismaður og  vammlaus. Hann hefur á ferli sínum sinnt mikilvægum trúnaðarstörfum á alþjóðavettvangi, sem aðrar þjóðir hafa  falið honum.

Morgunblaðið getur skammað  Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að vild. Hann getur svarað  fyrir   sig og gerir það. Hann er stjórnmálamaður. Morgunblaðið ræðst hinsvegar á embættismenn  vegna þess að   sá sem, leiðarann skrifar veit að þeir geta ekki svarað fyrir sig með  sama hætti og stjórnmálamenn.  Þetta er blaðinu til skammar. Þess vegna er ráðist að þeim. Aftur og aftur. Þetta er ódrengilegt.

  Leiðarahöfundur  Morgunblaðsins kallar  starfsmenn utanríkisráðuneytisins töskubera   utanríkisráðherra.  Blaðið uppnefnir og niðurlægjir  starfsmenn ráðuneytisins, sem vinna störf  sín eftir  bestu samvisku og  í trúnaði.  Þeir  eiga erfitt með að rísa á  fætur og rífa kjaft við ritstjóra Morgunblaðsins. Það er líka fyrir neðan  virðingu þeirra. Fyrrverandi sendiherra lætur sig hinsvegar hafa það að segja það sem honum í brjósti býr.

   Síðast var þessi töskuberanafngift, sem leiðari Morgunblaðsins hampar í dag, notuð í gamla Þjóðviljanum. Morgunblaðið hefur nú tekið við hlutverki hans.  Verði ykkur að góðu Morgunblaðsmenn.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>