Þegar fréttamenn rifja upp liðna atburði eiga þeir að fara rétt með staðreyndir. 1. mars var sagt frá því í morgunútvarpi Útvarps Sögu, að þann dag árið 1940 hefði vélbáturinn Kristján komið til heimahafnar eftir tólf daga hrakninga og var þá búið að telja bátinn af. Vélbáturinn kom ekki til heimahafnar, sem var Sandgerði, heldur rak bátinn upp í fjöru skammt frá Höfnum á Reykjanesi. Fjöldi breskra togara var að veiðum undan Höfnunum en enginn þeirra sinnti bátnum. Frá þessu segir m.a. í ágætri frásögn Ragnhildar Sverrisdóttur í Morgunblaðinu 20.12. 1998.. Ekki heyrði Molaskrifari betur en rangt væri farið með fleira í frásögn Útvarps Sögu. Fullyrðir þó ekki ,þar sem honum kann að hafa misheyrst. Fjölmiðlar gera mismiklar kröfur um að rétt sé farið með. Sumstaðar þarf þetta ekki að vera svo nákvæmt.
Morgunþáttarmaður Útvarps Sögu fjallaði um geldingu grísa. Hann átti í erfiðleikum með sögnina að gelda. Grísir eru geltir, gerðir ófrjóir og sviptir kynhvöt með því að fjarlægja eistu eða merja sundur sáðrásir, svo vitnað sé í orðabók. Kýr eru geldar þegar þær mjólka ekki. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir,sem rætt var við, var með þetta allt á hreinu.
Í fréttum Ríkissjónvarps er aftur og aftur talað um framkvæmdarvald. Molaskrifari hélt að ríkjandi málvenja væri að tala um framkvæmdavald.
Þegar Molaskrifari kveikti stutta stund á útvarpi um miðja nótt (02.02.2011) var verið að ræða við jógakennara á Rás eitt. Endurflutt efni. Um morguninn var aftur rætt við jógakennara í morgunþætti Rásar eitt. Ríkisútvarpinu er greinilega mikið í mun að auglýsa jógakennslu þessa dagana. Eitt viðtal hefði dugað.
Undarleg bandalög verða til í pólitík. Um þessar mundir slitnar ekki slefan milli Morgunblaðsins, Útvarps Sögu og Bessastaða. Ekki amalegur klúbbur. Lesendur Morgunblaðsins geta bókað að á hverjum einasta degi fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl finni Morgunblaðið Icesave-samningnum ekki flest , heldur allt til foráttu. Verða margir sótraftar á sjó dregnir til að lofsyngja málstað blaðsins. Blaðamenn flestir , virðast hafa tekið trú ritstjórans, nema líklega Kolbrún Bergþórsdóttir,sem áfram segir skoðanir sínar umbúðalaust.
Theodór Lúðvíksson sendi Molum eftirfarandi: „Mig langaði að nefna að mjög oft í fréttum á Íslandi, kannski frekar hjá blöðunum, er ætlast til að lesendur viti mjög margt og þess vegna sé óþarfi að gefa nokkur smáatriði. Dæmi – í Vísi í dag er frétt um að miðasala í Hörpu hefjist á hádegi í dag og búist sé við miklu álagi við miðasöluna og á netinu. En hvenær opnar Harpa! Ég þurfti að hafa fyrir að leita að því.“ Rétt ábending. Harpa opnar hinsvegar ekki í maí. Hún verður opnuð í maí.
Skildu eftir svar