Úr mbl.is (28.02.2011) : Goðafoss sigldi út úr norska skerjafirðinum fyrir skömmu en skipið er á leið til Óðinsvéa í Danmörku það sem það verður tekið í slipp. Þá er Skerjafjörðurinn kominn til Noregs, að sögn Mogga. Og ekki lýgur Moggi, var einu sinni sagt !
Í kynningu á Íslandi í dag á Stöð tvö (28.02.2011) talaði fréttamaður um fjögur verðlaun. Orðið verðlaun er aðeins til í fleirtöluu. Þess vegna hefði fréttamaður átt að tala um fern verðlaun. Þetta hefur verið nefnt svona fimmtíu sinnum í Málfarsmolum!
Þetta segir stofnunin vera helsta skýringin á tapi hennar, var sagt í hádegisfréttum Bylgjunnar (28.02.2011). Hér hefði átt að segja: Þetta segir stofnunin vera helstu skýringuna … Eða: Stofnunin segir þetta aðalskýringuna á tapi hennar.
Molaskrifari taldi sig nokkurnveginn óhultan að hlusta á Rás tvö að morgni mánudags (28.02.2011). En viti menn var þá ekki komið þar á dagskrá leikaraslúður frá Hollywood á hrognamáli. Það er ömurlegt að dagskrárstjórar skuli telja þetta efni birtingarhæft og hlustendum bjóðandi..
Það kemur fyrir að bitastætt efni er í morgunútvarpi Útvarps Sögu Nýlega (28.02.2011) var þar talað um fjármagnseigendur eins og það væru glæpamenn upp til hópa. Fjármagnseigendur er annað orð yfir sparifjáreigendur. Umsjónarmaður morgunútvarps ætti að kynna sér hve stór hluti þeirra sem hann kallar fjármagnseigendur eru eldri borgarar sem lagt hafa fé til hliðar og unnið hafa samfélaginu alla ævi. Umtalsverður sparnaður fór ekki að myndast í þjóðfélaginu fyrr en með verðtryggingunni. Því vilja ýmsir helst gleyma. Áður var þjóðfélagið eiginlega þjóffélag þar sem verðbólgan stal öllum sparnaði heiðarlegs fólks.
Óskar Bjartmarz þakkar Molaskrif og segir: „Datt í hug að leita til þín og spyrja þig um orðið „Uppkosning“ sem að því er mér virðist birtist fyrst í Morgunblaðinu eða Mbl.is. Í mínum huga er þetta eitthvert orðskrípi en allavega þá skil ég ekki hvað er átt við með því nema þá helst að kosningu þurfi að endurtaka. Reyndi að skoða þetta í orðabókum á netinu en komst næst því að þetta væri eitthvert nýyrði.“ Molaskrifari þakkar Óskari og tekur undir með honum. Uppkosning er orðskrípi, sem ekki er til fyrirmyndar.

Skildu eftir svar