«

»

Orkuhroki ?

Það er einkennileg afstaða   Orkuveitu Reykjavíkur  að neita fjölmiðlum um upplýsingar  um það hverjum  fyrirtækið  bauð á   tónleika Erics Claptons. Er þetta einhverskonar orkuhroki ?

Eiga ekki allir  viðskiptavinir  fyrirtækisins  heimtingu á því að  vita hverjum var  boðið?  Það er ekki  annarleg  forvitni  eða hnýsni heldur eðlileg  krafa um upplýsingar.

Orkuveitan getur  ekki haft neitt að fela í þessu máli  eða hvað?

Það hefur ekkert með  viðskiptahagsmuni að gera að leyna því hverjum var boðið.

Að halda  slíku fram  er  bara bull og þvættingur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>