«

»

Orðbragð á blogginu

Held  mig  geta  fullyrt að ég sé engin pempía. . En  lifandis skelfing   finnst mér  ósmekklegt þegar   fólk  notar  enska blótsyrðið „motherfucker“ á  almennum ritvelli eins og  Moggablogginu, samanber:  „Sækadellik motherfucker takk fyrir kærlega“, en  þetta  mátti lesa í dag á bloggi konu sem kennir  sig  við femínisma og  vinstri grænt. Orðbragð af þessu tagi er eiginlega utan alls velsæmis.

Umrætt  orð  er  eitt ljótasta blóts- og  klámyrði enskrar  tungu. Fólk  í enskumælandi  löndum  sem opinberlega  notar þetta orð  í skrifum   telst eiginlega  ekki í húsum hæft. Þetta er einhver  ljótasta sletta  sem maður sér.  Er það  svo að allt sé leyfilegt á blogginu?

Af hverju  líka   að  leggja áherslu á orð sín  með ógeðfelldum enskuslettum, þegar   íslenskan hefur þennan   stórkostlega og kjarnyrta orðaforða ?

Furðulegt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>