«

»

TÓMARÚM

 Á framboðsfundum í Vesturlandskjördæmi fyrir  30 árum gerðu  kommúnistar og hernámsandstæðingar gys að þeirri kenningu minni, að vera  varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli skapaði okkur öryggi og  ákveðna   festu í þessum heimshluta. Vera bandaríska  varnarliðsins  á Íslandi  væri mikilvæg.  Færi varnarliðið, mundi skapast  tómarúm,sem þrýst væri á  úr öllum áttum og  yrði því ekki lengi   tómarúm. Þetta  sannast núna. Varnarliðið  er farið  og   umferð  rússneskra  herflugvéla  í grennd  við landið og lofthelgi okkar fer  ört  vaxandi. Sjálfsagt  fjölgar einnig ferðum rússneskra kjarnorkukafbáta  í hafdjúpunum umhverfis landið. Það er bara ekki  fylgst með því lengur. Örugglega er það rétt  sem  Björn  Bjarnason og  fleiri  fróðir menn  benda nú á að ýmsir  ráðamenn vestan hafs  nagi sig nú í handarbökin yfir þeirri  skammsýnisákvörðun að hverfa  héðan með  þann litla  liðsafla sem hér  var.Það  var   röng  ákvörðun í ljósi vaxandi mikilvægis  norðurslóða og  sívaxandi   siglinga  flutningaskipa  og  herskipa  um  hafsvæðin  hér   fyrir norðan okkur. 

mbl.is Enn stafar ógn af hernaði Rússa

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Haraldur Rafn Ingvason skrifar:

    Bull!

    Rússaflugið fer um lofthelgi fleiri ríkja s.s. Noregs og Dammerkur, að ógleymdu flugi Rússa út yfir Kyrrahaf. Þetta er aðferð Rússa til að sýna að björninn sé vaknaður eftir ákveðið niðurlægingartímabil (að eigin mati) og hefur ekkert að gera með brotthvarf varnarliðsins. Helsta ástæðan fyrir því að Rússarnir eru að minna á sig er að NATO er komið upp í kartöflugarða hjá þeim. Sú útþensla getur nú ekki talist gáfuleg og það að setja niður eldflaugavarnakerfi á þessu svæði, með þeim hæpnu rökum að verjast þyrfti Írönum og N-Kóreu, bætti gráu ofan á svart.  

    Í raun eru Rússar í mjög góðum málum þar eð megnið af V-Evrópu er efnahagslega háð þeim vegna gasútflutnings þeirra. Það hreðjatak hefur V-Evrópa gengist inná algerlega sjálfviljug.

    Það sem virðist vera að gerast í Kálkasus er trúlega sambærilegt við fyrrum Júgóslavíu.  Þar urðu til sjálfstæð ríki með íhlutun NATO og nú er verið að leita einhverskonar sambærilegs jafnvægis í þessum fyrrum „Sovétlýðveldum“ – jafnógeðfelt og það nú er. Þetta er ormagryfja sem NATO ætti að fara mjög varlega að.

    Minni í lokin á að fyrir 30 árum var Rússaflugið upp á sitt besta. þá var kalda stíðið líka á fullu og hellingur af varnarliði á vellinum. Og Rússarnir flugu samt!

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>