«

»

Molar um málfar og miðla 640

 

Ríkissjónvarpið gortaði af því á dögunum að  sýna tvo unglingaknattspyrnuleiki  frá   Evrópu á sama tíma í beinni útsendingu. Nú (23.06.2011)  montar  sjónvarpið   sig af því  byrja að sýna Íslendingum ,,langlífustu sápuóperu í heimi”. Það vantar ekki menningarlegan metnað hjá  stjórnendum í Efstaleiti.

Oft hefur verið minnst á það í þessum pistlum hvernig  auglýsingastofur og  auglýsingadeildir komast upp með að segja neytendum ósatt . Í  auglýsingum  Stöðvar tvö (23.06.2011) og í auglýsingum Ríkissjónvarpsins (24.06.2011) var básúnað að Hagkaup væri að afnema virðisaukaskatt á tilteknum vörutegundum og skorað á ríkið að gera hið sama.  Alþingi getur  breytt lögum um  virðisaukaskatt, afnumið hann , lækkað eða hækkað. Það getur Hagkaup ekki. Þessvegna  er auglýsandinn að segja  ósatt  í þessari  auglýsingu. Og er ekki einn um það. Húsasmiðjan  auglýsir á sama hátt.

Það er ævinlega slæmt þegar rangt er farið er með orðtök sem  eiga sinn fasta sess í málinu.  Það var gert í morgunútvarpi  Rásar tvö (24.06.2011)Þar var sagt:  Þú ert ekki maður á meðal manna, ef þú kannt ekki að planka. Umsjónarmaður átti við, að sá sem ekki kynni að planka, eins og  nú er sagt, væri ekki maður með mönnum, –  ekki  mikill  bógur eða merkilegur  maður.    Þar var líka sagt að ísbúðir opnuðu í Lettlandi, en þar var reyndar verið að vitna orðrétt í Fréttablaðið þar sem segir í  forsíðufrétt (24.06.2011): Fyrstu  þrjár búðirnar  opna í Ríga í Lettlandi í lok júlí.   Búðirnar í Lettlandi opna ekki, þær  verða opnaðar. Búðir geta ekki opnað eitt eða  neitt. Á þessu er  hamrað enn einu sinni í veikri von um að dropinn holi steininn.

Í fréttum Stöðvar tvö (23.06.2011) var sagt frá  skemmtiferðaskipi,sem lá  við bryggju í Sundahöfn í Reykjavík. Stærsta skipið, sem hingað hefur komið í sumar.  Fréttamaður sagði skipið 115 brúttótonn að stærð.Átti  að vera  115 þúsund brúttótonn.  Augljós  villa, eða mismæli, sem þulur  hefði átt að leiðrétta. Þulur leiðrétti ekki. Heyrði ekki eða var ekki að hlusta.

Í sama fréttatíma Stöðvar tvö var sagt frá  varningi,sem er til sölu í gamalli rútu við Deildartunguhver í Reykholtsdal. Um það sagði fréttamaður: … og þar eru hverjar gersemarnar á fætur annarri til sölu. Ja, hérna. Þetta er bara tær snilld, eins og maðurinn sagði um árið.

Í  fréttum (?)  Ríkisútvarpsins  (23.06.2011) var talað um önnur  húsnæði.  Orðið húsnæði er eintöluorð. Þessvegna  hefði átt að tala um annað húsnæði. Ekki önnur húsnæði.  Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (24.06.2011) sagði  reyndur þulur og fréttamaður í fréttayfirliti:  Einn af hönnuðum fuglshreiðursins Olympíuleikvangsins í Peking var sleppt úr  fangelsi …  Þarna  hefði  átt að segja: Einum af hönnuðum …var sleppt úr fangelsi.  Manninum var sleppt úr  haldi. Seinna í sama  fréttatíma   var  okkur  sagt  , að  ráðið (fagráð um kynferðisbrot) hefði átt  fund  með  biskup.  Ráðið átti fund með  biskupi, hefði  hér átt að segja.  Ráðið hitti biskup að máli. Málfarsráðunautur hefur verk að vinna, sé hann enn að störfum. 

Það er undarlegt og óíslenskt orðalag, þegar sagt er að kona hafi hlotið dóm fyrir framan alþjóðlegan dómstól, eins og  gert var í í fréttum Ríkissjónvarps (24.06.2011). Betra hefði verið að tala um að alþjóðlegur dómstóll hafi  dæmt konuna. Sömuleiðis fannst Molaskrifara það undarlegt orðalag að tala um að kjósa gegn tillögu, þegar verið var að fella tillögu eða hafna tillögu í atkvæðagreiðslu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>