Sumarið 1957 starfaði ég sem bílstjóri hjá Innkaupaskrifstofu Varnarliðsins.Skrifstofan var í Tryggvagötu 8. Starfið fólst í útréttingum og nær daglegum ferðum til Keflavíkur eftir gamla malarveginum. Þegar ég tók við bílnum ,sem var blár að lit eins og aðrir bílar flughersins og merktur flughernum og Varnarliðinu í bak og ftyrir var lögð rík áhersla á það við mig að ég væri til fyrirmyndar í umferðinni,því ekki færi milli mála hver væri eigandi bílsins. Það tókst bærilega, að minnsta kosti fékk eg engar athugasemdir við aksturslagið og lenti ekki í neinum óhöppum.
Seinna hef ég tekið eftir því að erlendis er víða skrifað á merkta fyrirtækjabíla: Ef þú hefur athugasemdir við aksturslag þessa bíls , vinsamlega hringdu þá í síma…….
Í morgun ók ég á eftir stórum dráttarbíl með tengivagn. Ökumaður bílsins gaf aldrei stefnuljós. Var þó þrisvar tilefni til. Þegar leiðir skildi sá ég að bíllinn var rækilega merktur flutningafyrirtækinu GG flutningar ehf.
Ég hringdi í fyrirtækið og benti á að annað hvort væru stefnuljós þessa tiltekna bíls ekki í lagi eða bílstjórinn væri ekki í lagi.
Þessari ábendingu var illa tekið.
Fyrst hélt sá sem ég ræddi við að bíllinn hefði ekið á mig, en þegar hann skildi hvert erindið var þá voru viðbrögðin þessi;:
Hvað, ertu að hringja hingað með leiðindi út af þessu ?
Ég varð eiginlega kjaftstopp.
Mun seint leita eftir þjónustu þessa fyrirtækis.
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Pjetur Hafstein Lárusson skrifar:
07/01/2009 at 11:39 (UTC 0)
Þú átt nú að vita það Eiður minn, að mótmæli eru ekki vel séð nú um stundir.
Gleðilegt ár og þökk fyrir samfundina í Færeyjum.
Baldur Hermannsson skrifar:
05/01/2009 at 18:58 (UTC 0)
Er þetta ekki bara dæmi um siðleysi í atvinnulífinu? Fyrir mörgum árum hafði ég samband við bifreiðastöð í Reykjavík, man ekki hvort það var Hreyfill eða BSRB. Tilefnið var óþolandi hegðun bílstjóra í umferðinni. Þeir svöruðu skætingi. Ég samdi þá stutt lesendabréf fyrir DV, las fyrir þá og spurði hvort þeir hefðu einhverjar athugasemdir. Þá báðust þeir afsökunar fyrir hönd bílstjórans og töluðu við hann. Því miður er sinnuleysi löggunnar svo mikið að ekki þýðir að láta hana vita, en auðvitað ætti hún að láta sig málið varða.