«

»

Dylgjufréttamennska – „Látum þá neita því“

 Undanfarna  daga  hefur maður orðið  vitni að sérkennilegri  dylgjublaðamennsku Fréttastofu Ríkisútvarpsins.  Fyrst koma   fullyrðingar um  óviðurkvæmileg eða jafnvel ólögleg  afskipti þeirra   Tryggva Jónssonar  og Helga Jóhannessonar  af  sölu  fyrirtækja. Þetta er  sagt í fréttum  og því  fylgt  eftir í Kastljósi. Tryggvi og  Helgi  skýra  sín mál, en áfram  er haldið. Svo  koma  seinna  skýringar þeirra  Tryggva  og Helga  á þeirra  afskiptum af málinu,sem  ekkert  virðist  við að athuga.

Þetta minnir óneitanlega á  atburði   frá  árinu 1971 þegar  Nixon   vildi láta dreifa ósönnum  fullyrðingum um andstæðinga sína. Þegar undirmenn hans  hreyfðu  mótmælum,  sagði hann þá  setningu sem hans  verður sennilega  lengst minnst  fyrir: „Let them  deny it“. „Látum þá  neita  því.“  Leiðrétting hreinsar aldrei  fólk sem í fréttum hefur verið borið  röngum sökum. Það er margsannað.

Þessar fréttir  RÚV  hafa allavega  ekki  verið „unnar af alúð og  fagmennsku“  eins og   Ríkisútvarpið  segir í auglýsingu um eigið ágæti.

Allt  finnst  gömlum fréttamanni  þetta bera mjög  keim  af því að þeir sem  telja  sig hafa  farið halloka í viðskiptum  við bankann séu aðalheimildarmenn  fréttastofunnar  og  séu  þannig að nota  fréttastofuna og  auðtrúa fréttamenn til framdráttar sínum málstað. 

Og  svo að  lokum: Í fréttum  sjónvarps í  kvöld  var   tvísagt:“..að  stolið  hefði verið á annað hundrað gróðurhúsalampa“.  Á auðvitað að vera  „..lömpum“

Um frammistöðu skíðamanns  sagði íþróttafréttamaður:  „Honum urðu á  engin mistök“. Hann átti  auðvitað að segja:“Honum urðu  ekki á  nein mistök“

Ég segi bara svona.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>