«

»

Úrelt fyrirbæri Evróvisjón

Evrópusöngvakeppnin er löngu  úrelt fyrirbæri. Tónlistin er  einsleit og  hefur lengi  verið.  Umgjörðin alltaf  sú sama. Það  segir mikið um þessa  dagskrárgerð, þegar það  er orðið fjölmiðlum áhugaverðara hverju  þeir sem kynna lögin klæðast, fremur en hvað  er verið að  að kynna.  Þær ágætu ,en alltof notuðu sjónvarpskonur,  Eva María og  Ragnhildur  Steinunn voru  eins og trúðar í  síðasta  þætti þar sem mér varð litið á  skjáinn. Fatafígúrugangurinn hjá  sumu sjónvarpsfólki er löngu orðinn fáránlegur. það er ekki  jafnaðarmerki milli þess að vera í  nýjum fötum á hverjum  degi og að vera vel klæddur.  Umbúðirnar eru orðnar  innihaldinu mikilvægari. Það er kjarni þessa máls.

Það er  hinsvegar makalaust hvað  Sjónvarpinu tekst að gera  miklar langlokur úr þessu moði.Þetta er  ekki ódýrt efni  og  þessvegna  leyfi ég mér að segja að þessi langavitleysa sé  dýrt  spaug. Hvert skyldi áhorfið vera  í tölum talið ?

Sit  og  skrifa þetta í Hreiðri undir  suðurhlíð Hestfjalls þaðan sem    aðeins er hægt að horfa á RÚV.  Þegar langavitleysan byrjar í kvöld, tek ég mér  bók í hönd  og  rifja upp kynnin  af Páli í Pálssögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar. Bókina  keypti  í gær á  990 krónur. tvær skáldsögur í einni kilju . Það eru kjarakaup í kreppunni.

Ólafur Jóhann hefur lengi verið mér hugstæður  höfundur. Allt síðan ég stautaði  mig í  gegn um barnabók hans  Við Álftavatn sem ég  fékk í  sumargjöf  1946. Þar  minnir mig að sé vísa  sem hann ungur  orti um systur sína, held  ég muni hana rétt:

Illa liggur á henni,

að henni sækir  húmið.

Fer hún mamma frá henni

og fleygir henni í rúmið.

Ólafur Jóhann orti sum bestu ljóðanna sem okkur  voru gefin á  síðari helmingi tuttugustu aldar.

Nú er ég kominn hæfilega  langt frá lönguvitleysunni í sjónvarpinu  til að hætta þessu rausi.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>