«

»

Brennuvargar og barnamótmæli

Tiltölulega fámennur hópur  hasarfíkla kemur óorði á  mótmæli, sem  annars  væru  friðsamleg. Þetta er  samskonar lið og á árum áður taldi öllu  mikilvægara  að  kveðja  gamla árið með því að  slást  við lögregluna  í Reykjavík.Það er nú sem  betur  fer liðin  tíð.

Á mannamáli eru það  auðvitað  ekkert annað en skrílslæti  þegar brennuvargar  taka sér bólfestu á  Austurvelli og brenna meðal  annars  eigur  Reykjavíkurborgar. Til hvers þurfti að brenna  Oslóartréð ? Sýna  Norðmön num fyrirlitningu. Mest hissa  á  að  slökkviliðið skuli  ekki  hafa verið kvatt  á vettvang.   Síðan er  matvælum  af ýmsu  tagi  kastað á  Alþingishúsið og  Stjórnarráðið. Þeir  eru ekki blankir sem það gera, og  gefa  hungruðum heimi um leið langt  nef.

Ýmsar myndir af skjánum munu lengi geymjast í minni. Ekki síst mynd  af  10-11 ára gömlum dreng sem hefur verið skrýddur hjálmi .Hann  situr  úti í horni og  virðist umkomulaus og  utangátta og  varla  vita  hvar hann er  eða hversvegna. Lögreglan  forðar honum undan grjótkasti. Nú er komið fram  að móðir hans var í  20 metra  fjarlægð. Hversvegna  sótti   hún ekki barnið sitt?  Nú er  sagt að  hún ætli að kæra  lögregluna.  Ég held endilega  að barnaverndaryfirvöld hljóti að eiga  eitthvað  vantalað  við móður,sem  sendir  son  sinn ungan í fremstu  víglínu mótmæla og  stendur  bara álengdar og  fylgist með.

Svo var  viðtalið  við konuna  sem kenndi  dóttur sinni  17 ára að mótmæla GullkálfurCIMG3408 og  fylgdist svo með úr  fjarlægð , að eigin sögn, þegar  dóttirin mótmælti. Dóttirin  17 ára gamla var handtekin. Vel heppnuð mótmæli. Helvísk löggan. Má maður  ekki   djöflast á þinghúsinu í  friði?  Hvurslags er þetta eiginlega? Þessari konu  tókst  svo að  koma sér  í sjónvarpið  aftur í kvöld , – út af svo sem  engu.

Fjölmiðlar hafa legið undir  ámæli  fyrir  meðvirkni með útrásarvíkingum. Þeir  dönsuðu gagnrýnilaust með þeim í kringum  gullkálfinn. Rétt  eins  og  sést á þessari  ágætu tvímynd eftir  norska málarann Håkan Gullvåg.

Nú  er eins og  fjölmiðlar séu að  freista þess að  bæta fyrir þessi brot sín með því að vera meðvirkir með  mótmælendum. Sögum um  vondu löggurnar   er kyngt  athugasemdlalaust.  Löggan er vond. Mótmælendur  eru besta  fólk. Það eru   þeir  vissulega  langsamlega  flestir . Ósköp  venjulegt  fólk, sem er  reitt  og svekkt. Hefur  misst  vinnu, tapað  sparnaði sínum  og á kannski á  hættu að missa  húsnæðið. Mín  samúð  er með því  fólki, en  ekki með þeim   fáu sem eru aðalfréttaefnið,  brenna  eigur  samfélagsins og  senda börn og  unglinga í fremstu röð  eða víglínu gegn lögreglumönnum sem eru að    gegna  skyldum sínum. Og  foreldrarnir  fylgjast með  afkvæmum sínum úr  fjarlægð. Fyrirmyndaruppeldi, –  ekki satt?

Þetta eru  heldur daprir  dagar  fyrir  svona venjulegt fólk.

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Teitur Atlason skrifar:

    Það er augljóst að þú ert ekki í sambandi við landa þína.  Enda ekki skrýtið miðað við lúxuslífið sem þú lifir.  Ég á ekki til aukatekið orð yfir sambandsleysi þinu við þjóðina. Þjóðina sem þú ert samt fulltrúi fyrir!  Ert þú atvinnulaus?  Hefur þú kynnst því að eiga ekki fyrir útgjöldum heimilisins? 

    -Trauðla. 

  2. Kristján Logason skrifar:

    66% landsmanna stiðja mótmælin. Það þarf ekki fleiri orð

  3. Gunnar Freyr Rúnarsson skrifar:

    Þetta voru viðbjóðsleg skrílslæti og mikill fjöldi manna munu fá óbeit á þessum mótmælum.  Fámennur hópur spennufíkla hefur komið óorði á góðan málsstað.  Mynd mín af þessum mótmælum, er þegar ég sá fyrrum prófessor við Listaháskóla Íslands dansa einhvern sambadans af gleði þegar falsfréttirnar um fall stjórnarinnar heyrðust á Austurvelli í gær. 

  4. Hildur Helga Sigurðardóttir skrifar:

    Við hverju er að búast öðru en að núverandi ástand kalli á vissar öfgar í allar áttir.

    Samt er þetta skítkast út í þá sem hafa dug í sér til að mótmæla að verða heldur hvimleitt.

    Eru mótmælin ekki að skila árangri ?

    Hafa vit á að segja TAKK þið sem munið öll njóta góðs af.

  5. hilmar jónsson skrifar:

    Svona ummæli afhjúpa sjálfan þig og þitt vitsmunalíf.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>