«

»

Molar um málfar XXXV

    Þeir gera það ekki endasleppt, sem bera ábyrgð á  fyrirtækinu,sem ber ónefnið ,,Merkja Outlet“ og áður hefur verið  vikið lítillega  að í þessum dálkum. Í heilsíðuauglýsingu í  Fréttablaðinu (27.03) auglýsir þetta  fyrirtæki: ,,Bestu verðin“. Orðið verð er eintölu orð.  Þarna ætti  að  standa: ,,Besta verðið“. Stjórnendur þessa fyrirtækis bera ekki mikla  virðingu  fyrir móðurmálinu. Eftir  að hafa skrifað þetta  sá ég auglýsingu á Vefmogga  frá  fyrirtæki sem kallar sig ,,Barna outlet“.  Það er reyndar einnig  stafsett ,,Outlett“. Skyldi þetta fyrirtæki  selja  börn ? ,,Bílaoutlet“ segjast selja  bíla. Þetta  er  ekki til  fyrirmyndar.

Í DV (27.03) er psitill um  Kastljós og Ísland í dag. Þar segir: ,,Nýtt fólk var ráðið inn og  stefnan tekin á popp“. Hversvegna   var ,,fólk ráðið inn“? Nægt hefði að segja  að  fólk hefði verið  ráðið.  Orðinu ,,inn“  er þarna  ofaukið.

,,Síðasta sumar“, sagði fréttamaður  RÚV í sjónvarpsfréttum (27.03) og  átti við í fyrra sumar. Konan var greinilega að hugsa á  ensku- ,,last summer“..

 Svona í lokin langar mig  til að  vitna í  bók  Evu Joly,en á  ensku heitir  bókin ,,Justice Under Siege“. (Umsátrið um réttlætið) Bók er upphaflega skrifuð á  frönsku og  geldur enski  textinn þess  að nokkru. Í bókinni vitnar Eva Joly í hnyttna  athugasemd,sem hún eignar spænskum dómara,Baltasar Garzón. ,,Menn eru alveg  hættir að  ræna banka. Þeir bara kaupa þá „! Ummælin  eru   frá því   fyrir  bankahrunið á  Íslandi, annars hefði maður  haldið  að  þau kæmu  frá  staðkunnugum manni.

7 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Bergsteinn Sigurðsson skrifar:

    Orðin sem Eva Joly vitnar í hljóma eins og útlegging af hinum fleygu orðum, sem Berthold Brecht lagði í munn Makka hnífs í Túskildingsóperunni: „Hvaða munur er á að stofna banka og ræna banka?“

  2. Sverrir Einarsson skrifar:

    Ég er farinn að halda  að þeir/sá sem á þessa „merkjavöru“ búð í Faxafeninu sé/u ekki Íslenskir. Annars fer mikið fyrir Ísl-Ensku í blöðum nú orðið.

    Þetta Barna Outlet er náttúrulega alveg eins og út úr kú. Allavega við hliðina á Bila Outlet auglýsingunni.

    Ég ætti kannski  að líta þar við og spyrja hvar eru Börnin sem eru á Outlet verði eins og ég myndi gera ef ég færi í þetta Bíla Outlet.

  3. doddý skrifar:

    öll þessi verð gera mig brjálaða. svo er kannski hægt að hafa „þingmannaátlett“.    kv d

  4. Steini Briem skrifar:

    Vitleysa af þessu tagi hefur undanfarin ár oft heyrst í fréttum Ríkisútvarpsins:

    „Afganskur stjórnarhermaður skaut tvo liðsmenn alþjóðahersins í Afganistan í gær, særði þann þriðja, og réð sér þvínæst bana.“

    Í þessari frétt á að sjálfsögðu að koma fram að tveir menn hafi verið skotnir til bana. Sá þriðji var væntanlega einnig skotinn en „einungis“ særður.

    Afganistan: 2 hermenn felldir.

  5. Ævar Rafn Kjartansson skrifar:

    Takk fyrir pistlana.

  6. Ómar Ragnarsson skrifar:

    Áfram, Eiður !

  7. Heimir Tómasson skrifar:

    Góður.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>