«

»

Molar um málfar XXXVI

  Það væri verðugt verkefni fyrir nýjan málfarsráðunaut  RÚV  að kenna  ýmsum sem þar koma  að hljóðnema  grundvallatriði beyginga. Það er til dæmis ekki óalgengt að  heyra: „Lagið  var sungið  af Hauk  Morthens“. Mannsnafnið Haukur  beygist: Haukur Hauk,Hauki, Hauks. Svo  finnst mér  að  forðast eigi notkun þolmyndar ,sem   þar sem óhjákvæmilegt er. Germynd er alltaf betri

Eftirfarandi er orðrétt úr Vefmogga (28.03) Mér sýnist þetta staðfesta að   bögubósunum er sleppt  lausum um helgar:

,,Dímítrí Medvedev, forseti Rússlands, segir að lífið í Tsjetsjníu gæti senn fallið í eðlilegar horfur.  Forsetinn sagði í rússneska sjónvarpinu að það nú gæti verið kominn tími til að enda öryggisráðstafanir þær sem hafa verið í gildi í héraðinu síðustu tíu ár. Þetta kemur fram á vef BBC.

Meðal öryggisráðstafananna hefur útgöngubann verið í gildi í héraðinu, vegatálmar og regluleg leit að mörgulegum íslamistum. „Ástandið í Tsjetsjníu hefur róast verulega,“ sagði Medvedev. „Við verðum að skapa nýja möguleika á fjárfestingum og atvinnu,“ sagði forsetinn jafnframt. Medvedev kom fram í sjónvarpi eftir viðræður við yfirmann rússnesku leyniþjónustunnar, Alexander Bortnikov.“

Ég ætla að þessu sinni að láta lesendum  eftir  að finna  villurnar.

,,Einn ökuníðingur ók á 271 km hraða í nótt“ (DV28.03) Afhverju ,,Einn“. Óþarft orð.

Allt er það rétt ,sem  Steini Briem segir um orðin ,,öryggisstig,óvissustig,viðbúnaðarstig og þjónustustug“. Þessi orð  eru óttalegt klúður, að  ekki sé  fastar að orði kveðið.

 Ekki  hef  ég tekið  eftir því að  veðurfræðingar á  RÚV  séu illa máli farnir,eins og Baldvin segir  í athugasemd. Þvert á móti. Sigurður  á  Stöð tvö  er    sömuleiðis  prýðilega  mæltur  og  gott hjá honum að halda  til haga  gömlum orðum um veðurfar.

  Í kynningu á ,,Speglinum“ í  RÚV (30.03) var svo  tekið  til orða  ,að líklega mundu nýnaistar bjóða  fram  til þings í Noregi í fyrsta sinn  síðan  fyrir  stríð. Þetta er  út úr kú. Það  voru engir ,,nýnasistar“ í Noregi  fyrir   stríð.

Og  svo að lokum, – enn um verð:,,Hér hafa komið ábendingar um hin ýmsu lægri verð á pizzum“. Af moggabloggi í  kvöld (30.03)

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Guðmundur B. Ingvarsson skrifar:

    Svo ekki sé nú minnst á hið óhemjuljóta og óþarfa spennustig.  Nú til dags getur spennan ekki verið mikil heldur þarf spennustigið að vera óskaplega hátt.  Hvernig ætli maður mæli þetta spennustig??

  2. Eiður skrifar:

    Biðst velvirðingar á fljótfærnisvillu í lok  fyrstu málsgreinar. Þar á  auðvitað að  standa ,,…nema þar sem óhjákvæmilegt er.“ ESG

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>