«

»

Molar um málfar og miðla 1411

Molalesandi skrifaði vegna Eimskipafélagsmyndarinnr sem sýnd í Ríkissjónvarpinu sl. sunnudagskvöld (09.02.2014): ,,Sæll Eiður. Mig langaði að gauka að þér mola, vegna skrifa um Eimskipa-þáttinn á RÚV. Í þættinum var með ótrúlegum hætti skautað framhjá atriði varðandi strand Vikartinds. Fullyrðingin í þættinum var eitthvað á þá leið að Gæslan hefði bjargað skipverjum en seinna hefði komið í ljós að skipstjórinn hefði afþakkað aðstoð. Þetta er í besta falli hálfsannleikur. Starfsmaður Eimskipa var um borð í Vikartindi og var í sambandi við Eimskip allan tímann og félagið átti því að vita nákvæmlega hver staðan var. Ósmekklegast þykir mér þó að ekki var vikið einu orði að þeirri staðreynd að ungur maður lést við björgun Vikartinds-manna. Sá var bátsmaður á Ægi, en hann tók útbyrðis og drukknaði. Félagi hans slasaðist nokkuð illa. Á þetta atriði var ekki minnst á einu orði. Það finnst mér ömurlegt.” Molaskrifari er lesanda hjartanlega sammála. Myndin var glansmynd enda þulartextinn í fullu samræmi við það.

 

Trausti benti á eftirfarandi (10.02.2014): http://www.visir.is/vatnid-i-thames-vex-og-vex/article/2014140219992
Og segir:
,,Áin er í vexti og þá EYKST vatnið” Molaskrifari þakkar bréfið. Þetta hefur komið fréttabarninu alveg í opna skjöldu!

 

Í frétt á sunnudagsmorgni í Ríkisútvarpinu (09.02.2014) var sagt frá banaslysum í Tókýó vegna hálku. Sagt var, að slysin hefðu orðið eftir hálku. Slysin urðu í hálku, ekki eftir hálku.

 

Í fyrirsögn á visir.is (09.02.2014) segir: Bandaríkin fékk aftur gull í brekkufimi. Ja, hérna.

http://www.visir.is/bandarikin-fekk-aftur-gull-i-brekkufimi—myndband/article/2014140209071

 

Svo fengum við að heyra í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að Skúla Helgasyni hefði aðeins vantað 13 atkvæði í prófkjörinu til að ná 3. sæti. Pest á ferðum í Efstaleiti. Hvar er málfarsráðunauturinn? Hann á að lækna svona lagað.

 

Í morgunfréttum Ríkisútvarps (10.02.2014) var sagt að flest ný hótel mundu opna í miðborginni. Opna hvað? Flest ný hótel verða í miðborginni.

 

Ingibjörg vakti athygli Molaskrifara (10.002.2014) á viðtali úr fréttum Stöðvar tvö: ,,Langaði að vekja athygli þína á þessu viðtali. Mér finnst það óábyrgt að senda svona lagað út.
http://www.visir.is/vaettir-og-afturgongur-i-arbaejarsafni/article/2014140209024 – Þetta er auðvitað með endemum: – Miklabæjar Sólveig var höfnuð af presti, heyrist sagt þarna !

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>