«

»

Molar um málfar og miðla 1541

 

Fyrrum fréttamaður skrifaði (10.08.2014):

,,Fréttastofa Ríkisútvarpsins er stöðugt að læra góð vinnubrögð. Nú hefur hún tekið orðskrípið „íþróttapakki“ upp eftir Stöð 2. „Þéttur íþróttapakki í kvöld, farið ekki langt“, segja þeir á Stöð 2. Þetta ásamt öðru veldur ákveðnu hugarástandi hjá mér. Þetta hefðum við á mínum unglingsárum kallað „plebbahátt“, Já, það er einmitt plebbaskapurinn á Stöð 2, sem hefur haldið mig frá þeirri stöð. En nú hefur Ríkisútvarpið sem sagt bæst í plebbahópinn og lapið ósómann upp eftir keppinautnum í þéttum íþróttapökkum.” Molaskrifari tekur undir með  fyrrum fréttamanni. Þetta íþróttapakkatal er  óttalega hallærislegt,  að ekki sé  sterkar að orðið kveðið.  Þessi ágæti bréfritari og fyrrum kollega segir líka: ,, Svo langar mig einnig  að benda á algenga meinloku í fréttaskrifum, sem oft ber á, jafnvel hjá vönduðum fréttamönnum eins og Veru Illugadóttur. Sagt er: ,,x hefur veitt fjármunum til verkefnisins. Á að vera veitt fjármuni til verkefnisins. Fjármunir eru ekki vatn. Menn veita vatni á akra, en veita peninga til verka”.  Molaskrifari þakkar þarfar ábendingar.

 

Molavin skrifaði (12.08.2014): ,,Fréttakona Stöðvar 2 sagði í kvöldfréttum  áðan að læknir, sem smitast hafði af ebólu, hefði verið fluttur til Spánar með mikilli viðhöfn. Rétt er að það var mikill viðbúnaður vegna smithættu en það er ekki sama viðhöfn og viðbúnaður.

Sem fyrr les enginn fullorðinn yfir fréttatextann áður en hann er fluttur.” Gæðaeftirlit ekki til staðar, frekar en fyrri daginn. Þakka bréfið.

 

Í fréttum Ríkissjónvarps (10.08.2014) var sagt: Í  gær opnuðu  sýningar. Sýningarnar  voru opnaðar. Þær opnuðu ekki neitt. Sennilega  er það tapað stríð að tala gegn þessari notkun sagnarinnar að opna. Þetta heyrist  og sést í fjölmiðlum næstum á hverjum degi.

 

Óþörf þolmyndarnotkun á mbl.is (11.08.2014): Tvær bif­reiðar voru stöðvaðar af lög­reglu á höfuðborg­ar­svæðinu í nótt,  …Betra hefði verið: Lögreglan  stöðvaði tvær bifreiðar á höfuðborgarsvæðinu í nótt.  Germynd alltaf betri.

 

Gisti ekki í Landmannalaugum , er óræð fyrirsögn á mbl.is (11.08.2014). Það  fyrsta sem lesanda  dettur  líklega í hug er, að verið sé að segja frá ferðamanni,sem ekki hafi gist í Landmannalaugum , heldur annarsstaðar.  Svo er ekki. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/08/11/gisti_ekki_i_landmannalaugum/

Efni fréttarinnar er að breyta eigi skipulagi svæðisins þannig  ,  að ekki megi tjalda eða  gista við laugarnar heldur  verði fólk að tjalda nokkurn spöl frá  laugunum. Efni fréttar á að vera hægt að ráða af fyrirsögn. Það er ekki hægt í  þessu tilviki.

 

Í undirfyrirsögn á bls. 4 í Morgunblaðinu (11.08.2014) segir:  Leki kom upp í bát við Hólahóla í gær. Ekki er venja að tala um að leki komi upp. Hér hefði verið  eðlilegt að segja: Leki kom að bát/báti  undan Hólahólum.  Báturinn var ekki við Hólahóla. Hann var undan Hólahólum eða utan við Hólahóla eins og sagt er í  fréttinni. Í annarri undirfyrirsögn í sama blaði sama dag (bls. 4)  segir:  Alvarleg líkamsárás varð í miðbænum á laugardagskvöld.  Æ algengara að  sjá þessa meinloku eins og t.d.  bílvelta varð. Líkamsárásin varð ekki.

Ráðist var á mann. Ómar Ragnarsson hefur oft bent á þetta í sínum ágætu bloggskrifum.

 

Er enginn á Morgunblaðinu, sem hefur það hlutverk að  lesa yfir  fyrirsagnir, – að ekki sé nú talað um fréttir, svona almennt?

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Takk, Sigurður, G.

  2. Sigurður G. Tómasson skrifar:

    „Fyrrum fréttamaður“ á líklega að vera „fyrrverandi fréttamaður“ en fyrrum er atviksorð og með starfsheitinu fréttamaður verður að koma fallorð, lýsingarorð eða lýsingarháttur sagnar. Þá er ekkert athugavert að nota sögnina aö veita með þágufalli, hvort sem talað er um peninga eða fjármuni. Það hafa menn gert frá því alþingi fékk fjárveitingavaldið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>