«

»

Molar um málfar og miðla 1600

Það var eitt og annað athugavert við málfar i  eftirfarandi frétt af vef Ríkisútvarpsins (22.10.2014) um deilur vegna skipsins Fernöndu sem eldur kom upp í fyrir um ári. Landhelgisgæslan bjargaði áhöfninni frækilega  og skipið var dregið til hafnar. Það var síðan bútað niður í brotajárn. http://www.ruv.is/frett/faer-ekki-130-milljonir-vegna-fernondu

Fréttin var lesin í seinni fréttum sjónvarps á miðvikudagskvöld.

Sagt var:,-  ,,,mörgum tugum lítra af olíu var dælt úr því”. Rangt. Olíumagnið var margfalt meira. Fram kom á fréttavef Ríkisútvarpsins í byrjun nóvember í fyrra að um 100 tonn af olíu væru enn í tönkum skipsins. Sagt var að málið væri ,, nú statt hjá lögfræðingum Landhelgisgæslunnar”. Statt hjá lögfræðingum? Lögfræðingar Landhelgisgæslunnar fjalla nú um málið. Loks var talað um ,,björgunarlaun vegna skipsverjanna ellefu”. Orðið skipsverji kannast Molaskrifari ekki við. Orðið skipsmaður hefur hann hinsvegar heyrt notað um skipverja. Fjölmennasta fréttastofa landsins  á að  vanda betur til verka.

 

Hógvært samtal Jóhannesar Kr. Kristjánssonar við Landspítalafólk í Kastljósi á miðvikudagskvöld 22.10.2014) var hrollvekjandi. Ekki voru þó notuð stóru orðin, en alvara málsins komst vel til skila. Mörgum hefur áreiðanlega verið brugðið. Svo tala menn í alvöru um að eyðileggja verðmætt samgöngumannvirki sem Reykjavíkurflugvöllur er til að fullnægja duttlungum skammsýnna stjórnmálamanna í Reykjavík. Við gerum ekki hvort tveggja í senn að byggja nýjan Landspítala og gera nýjan flugvöll. Við höfum ekki ráð á því. Valið ætti ekki að vera erfitt.

Landspítalamálinu var svo vel fylgt eftir í Kastljósi gærkvöldsins. Viðmót Páls Matthíassonar forstjóra Landspítalans hæfði alvöru málsins. Stóryrðalaust gerði hann okkur ljósa alvöru málsins og kurteislega brást hann við illa ígrunduðum og allt að því dónalegum fullyrðingum Vigdísar Hauksdóttur formanns fjárlaganefndar. Takk Jóhannes Kr. Takk Kastljós.

 

Rafn vitnar í fréttavefinn visir.is (23.10.2014), en þar segir: ,,Fyrsti bíllinn sem Jaguar/Land Rover framleiðir í verksmiðjunni er Range Rover Evoque, en einn fimmti af hverjum framleiddum slíkum bíl selst nú í Kína. Kína er stærsti markaður fyrir Jaguar/Land Rover bíla og þar seljast nú yfir 100.000 bílar á ári.” Rafn spyr: ,,Væri ekki heppilegra að selja fimmta hvern bíl í Kína, fremur en láta Kínverja kaupa fimmtung hvers einasta bíls? Væntanlega þarf nú að semja við Kínverja um afnot af hinum 80% hlutnum í hverjum bíl, nema Kínverjar endurselji fimmtung sinn”. Molaskrifari þakkar Rafni bréfið. Von er að spurt sé. Sjá: http://www.visir.is/range-rover-framleiddur-i-kina/article/2014141029512

Molaskrifara þykir jafnan vænt um það, þegar honum eru þökkuð Molaskrifin eða vinsamlega að þeim vikið. Það var gert í Staksteinum Morgunblaðsins á þriðjudag (21.10.2014). Hefur þó ekki alltaf verið farið mjúkum höndum um málfar í Morgunblaðinu í þessum Molum. Molaskrifari þakkar fyrir sig.

 

Næstu Molar á mánudag.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>