«

»

Molar um málfar og miðla 1796b

 

AÐ OLLA

Sögnin að olla ( sem reyndar er ekki til ) kemur  æ oftar  við sögu í fréttaskrifum. Gunnsteinn Ólafsson  benti á þetta nýlega dæmi á mbl.is (15.09.2015):  ,,Þess­ar upp­götv­an­ir ullu því að sam­band hans við móður­ina sem ætt­leiddi hann versnaði og ákvað hann að flýja Pól­land.” http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/09/15/endurfundir_eftir_70_ara_adskilnad/

Fréttin er um endurfundi tvíbura í Póllandi.

 

Í BEINNI ÚTSENDINGU – ÓKEY,  –  HVAÐ?

Það er eins og sjónvarpsstöðvarnar telji nauðsynlegt  að vera alltaf með  viðtal í beinni útsendingu í kvöldfréttum, – hvort sem tilefni er til eður ei. Á mánudagskvöld  (14.09.2015) var  Stöð tvö með viðtal við utanríkisráðherra í beinni útsendingu úr ráðuneytinu. Bein útsending  bætti  engu  við gildi þessa viðtals. Þarna var  tæknin  nýtt  tækninnar vegna , ekki  til að gefa fréttinni vægi eða  gildi.  Fréttamaður  fær  ekki hrós fyrir að segja  eftir  svar utanríkisráðherra: ,,Ókey, Bjarni Benediktsson sagði í fréttum hjá okkur í  gær, að það væri óboðlegt.. “ (07:30) http://www.visir.is/section/MEDIA

Í fréttatíma  Stöðvar tvö næsta kvöld (15.09.2014) kom aftur frá  (sama?) fréttamanni í lok  viðtals: Ókey, við  fylgjumst með …. Er ekki lágmarkskrafa, að fréttamenn í sjónvarpi séu sæmilega talandi á íslensku?

 

VANDRÆÐA -R-

Hér hefur áður verið  vikið að vandræðum með  bókstafinn  – r –  í samsettum orðum. Í fréttum Stöðvar 2  (14.09.2015) var í skjáskilti  sagt frá velferðaþjónustu. Átti  að vera velferðarþjónusta.

Af vef  Ríkisútvarpsins (15.09.2015): ,,Verslun og benínstöð (svo!)Costco við Kauptún í Garðabæ verða rúmir 20 þúsund fermetrar. Gert er ráð fyrir 791 bílastæði við verslunina sem ætlar að bjóða upp á sjóntækjamælingu, heyrnamælingu auk þess sem hægt verður að fara á kaffihús og kaupa dekk.”   Þarna verða sjálfsagt margar heyrnir  mældar og  svo verður þarna fyrsta kaffihúsið á Íslandi, sem  selur dekk.

 

ILLSKILJANLEG ÓKURTEISI

Það er illskiljanleg ókurteisi Ríkissjónvarpsins að tilkynna okkur ekki dagskrárröskun með skjáborða. Seinni fréttum  seinkaði um meira en tíu mínútur á mánudagskvöld (14.09.2015). Engin skjátilkynning,  en  fréttaþulur baðst afsökunar á seinkuninni í upphafi fréttatímans. Gott. En ekki nógu gott. – Niðursoðnar dagskrárkynningar eru ekki boðlegar og það er ekki tæknilega flókið að setja upplýsingar á skjáborða.

 

ÍSLENSKT MÁL  Í ÖNDVEGI

Það er  góður siður í Morgunútvarpi Rásar tvö að ræða vikulega  við málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins um íslenskt mál og málnotkun. Í spjallinu  sl. þriðjudag (15.09.2015) vísaði  ráðunautur  til stjórnmálamanns, ráðherra  sem  rætt hafði verið við fyrr í þættinum og talaði sérstaklega  vandað mál. Ef átt var við ráðherrann sem  sagði:   síðast þegar ég tékkaði, talaði um Akranesinga , forsendunar og að  forma húsnæðislánakerfið, þá   eru kröfurnar um vandað málfar  nú reyndar ekki mjög strangar. En það er  þarft verk að spjalla um málfar í   fjölmiðlum og benda á það sem betur má fara. Til þess arna mætti gjarnan  verja meiri  tíma í þessari stofnun okkar allra.

 

TIL LESENDA

Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>