UPPNEFNI
Fremur er sjaldgæft að sjá eða heyra fólk uppnefnt í fjölmiðlum.
Í viðtali á visir.is (25.09.2015) talaði útvarpsstjóri Útvarps Sögu, Arnþrúður Karlsdóttir um Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra Kastljóss, og sagði: ,,Ekki mátti minnast á það hjá Þóru litlu Arnórs þegar hún var að fjalla um upphaf lögreglukvenna…”. Þetta segir heilmikið um útvarpsstjóra Útvarps Sögu, en nákvæmlega ekkert um Þóru Arnórsdóttur. Ekki stækkar þetta útvarpsstjórann. http://www.visir.is/vill-banna-utvarpi-sogu-ad-nota-kennistefin/article/2015150929126
ÓTÆKT FYRIRKOMULAG
Þegar dagskrá Ríkissjónvarps fer verulega úr skorðum eins og gerðist sl. föstudagskvöld (25.09.2015) kemur vel í ljós hversu ótækt og óboðlegt það er, að Ríkissjónvarpið skuli enn leyfa sér að vera með niðursoðnar dagskrárkynningar. Ógerlegt er að bregðast við óvæntum breytingum. Prýðilegur og þarfur þáttur um einelti var lengri en gert var ráð fyrir. Við því var ekki brugðist með því að tilkynna seinkun í dagskránni.- Það heyrir annars orðið til undantekninga að seinni fréttir sjónvarpsins hefjist nákvæmlega á réttum tíma. Það er subbuskapur, sem aðrar sjónvarpsstöðvar leyfa sér ekki.
KÚPA
Kannski er ekki til stafsetningarorðabók á Fréttastofu Stöðvar tvö. Á laugardagskvöld (26.09.2015) var fjallað um Kúbu. Í neðanmálstexta var landið kallað Kúpa og hvað eftir annað talað um kúpversku þjóðina. Enginn les yfir.
ENN UM STOKKINN
Í þessum sama fréttatíma Stöðvar tvö var talað um sjö konur sem ætluðu að stíga á stokk í ráðhúsi Reykjavíkurborgar. Konurnar voru ekki að stíga á stokk og strengja heit. Bara bull. Þær fluttu ræður á málþingi í ráðhúsinu.
MEIRA UM STAÐSETNINGU
Nokkrum sinnum hefur hér verið fjall um orðið staðsettur. Þetta er af mbl.is (28.09.2015): ,,Fyrir 10 árum byrjaði eldri dóttir Önnu í Langholtsskóla var starfsemi frístundaheimilisins færð úr kjallara Langholtsskóla í núverandi staðsetningu.”
Starfsemin var færð á núverandi stað, varð færð þangað sem hún er núna. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/09/26/vard_fyrir_bil_a_leidinni_heim/
AÐ HALA INN
Af mbl.is (28.09.2015): ,,Kvikmyndin Everest stefnir í að verða sú erlenda mynd Baltasars Kormáks sem mestum tekjum hefur halað inn.” Þetta samrýmist ekki máltilfinningu Molaskrifara. Hann hefði fremur sagt: ,, … sem mestar tekjur hefur halað inn”. http://www.mbl.is/folk/frettir/2015/09/28/everest_stefnir_a_toppinn/
AF HEIMASÍÐU FORSETANS
Margt merkilegt og eftirtektarvert má lesa á heimasíðu forsetaembættisins. Forseti hefur til dæmis haldið sérstakan fund með stjórnendum Kaupfélagsins á Króknum http://www.forseti.is/Frettir/Ollfrettin/stjornendurkaupfelagsskagfirdinga/ Víða liggja þræðir.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
Skildu eftir svar