KRYFJA – KRUFÐI
Molavin skrifaði (28.12.2015): ,,Venjulega lítur maður til fréttastofu Ríkisútvarpsins sem fyrirmyndar um meðferð móðurmálsins. Enda eru fréttir þar venjulega á góðu máli. En mistök geta orðið og þá vantar þar eftirlit. Í frétt (28.12.2015) um síld í Kolgrafarfirði sagði: „þegar ábúendur á Eiði við Kolgrafafjörð krufu skarf…“ Þetta fór óbreytt inn á vefsíðu RUV og er þar enn. Hér á vitaskuld að standa „krufðu.“ Kannski er þetta innsláttarvilla, en þá ætti þulur að sjá og vaktstjóri að lesa. Eftirliti og yfirlestri er ábótavant og það setur blett á góða stofnun.”
HAFÐI SNÉRIST
Úr frétt umferðarslys á mbl.is (27.1.2.2015): ,, “Í gær var greint frá því á mbl.is að bílaleigubíll hafi snérist og runnið á 40-50 km hraða fram af þverhnípi, farið nokkrar veltur og hafnað í fjöru”. Bíllinn hafði snúist. Sjá:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/12/27/annad_slys_a_nanast_sama_stad/
AUKAFRÉTTIR
Gott framtak hjá fréttastofu Ríkisútvarps að vera með aukafréttatíma (30.12.2015) klukkan tólf eftir fárviðrið eystra. Málum gerð ágæt skil. Í kynningu var talað um ,,að blása til aukafréttíma”! Tæpum klukkutíma seinna var framið bankarán í Reykjavík. Svona er fréttamennskan!
SÓKN ENSKUNNAR
Molaskrifari lýsir ábyrgð á hendur auglýsingastofum, kaupahéðnum og stórverslunum fyrir að innleiða og endurtaka í síbylju ensk orð eins og Tax free, sem hefur ekkert með skatt að gera, er bara auglýsing um afslátt. Svo hafa bæst við orð eins og Black Friday og Cyber Monday, beint úr amerísku auglýsingamáli. Á Þorláksmessu heyrði skrifari talsmann verslunarinnar nota þessi ensku orð í útvarpsviðtali, – rétt eins og þau væru góð og gild íslenska. Við þurfum að skera upp herör gegn þessum slettum.
Bretar kalla annan í jólum Boxing day. Þá eru miklar útsölur. Verður það ekki næst hjá hérlendum kaupahéðnum og auglýsingastofum að apa það eftir? Sjá: http://www.dv.is/frettir/2015/12/26/kaupodir-bretar-felldu-hundrad-ara-solumet-boxing-day/
HERTASTA LÖGGJÖFIN
Í hádegisfréttum Bylgjunnar (29.12.2015) var talað um breytingar á innflytjendalöggjöf í Noregi, sem verði ,,sú allra hertasta í Evrópu.”Væntanlega var átt við að löggjöfin yrði sú allra strangasta í Evrópu. Eins og Bogi sagði réttilega í fréttum Ríkissjónvarps í gærkvöldi (29.12.2015)
MET?
Í fimm fréttum Ríkisútvarpsins 29. desember var beðist afsökunar á ranghermi í frétt, sem flutt hafði verið 28. október. Betra er seint en aldrei. En er þetta ekki einhverskonar met?
ÓFÆRÐ
Ný spennuþáttaröð Ríkissjónvarpsins lofar heldur góðu, eftir fyrsta þáttinn (27.12.2015). Fagfólk að verki.
Ágætu Molalesendur, – þetta er síðustu Molar ársins 2015.
Óska ykkur árs og friðar og þakka samskiptin á liðnu ári, – þakka öll bréfin, símtölin og gagnlegar ábendingar. Gott er að eiga ykkur að. Megi nýtt ár færa ykkur góða heilsu og hamingju hugans. Lifið heil!
Eiður Svanberg Guðnason
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
Skildu eftir svar