«

»

Molar um málfar og miðla 1877

 

UM KYNNINGAR OG FLEIRA

Þórarinn Guðnason, vinur Molaskrifara og vinnufélagi á árum áður, sendi eftirfarandi (28.01.2016) ,,Sæll félagi,

Ég hef aldrei almennilega skilið þegar verið er að tala um að fólk sé kynnt fyrir dauðum hlutum. Þannig varð mér á að skella upp úr, þegar ég las eftirfarandi klausu á visir.is, í grein eftir Eirík Stefán Ásgeirsson, um EM-mótið í Póllandi:

„Dagur hefur verið duglegur að kynna leikmenn sína fyrir íslenskum drykkjar- og matvælum en í hann bauð sínum mönnum upp á Tommaborgara í æfingabúðunum í Berlín fyrir mótið“.

Tókust leikmenn í hendur við veitingarnar, eða hvað?

Fyrir utan ,,drykkjar- og matvælum“ orðalagið og fleira, finnst mér nú líka á mörkunum að þjálfari haldi upp á sigur í leik með kassa af bjór, – í beinni útsendingu en það er annað mál.” Kærar þakkir, Þórarinn. Tek undir með þér í einu og öllu og þakka bréfið.

 

ÞRÍR FYRIR TVEIR!

Stefán Haraldsson skrifaði (29.01.2016): ,,Góðan daginn Eiður.
Nú bjóða margar verslanir vörur sínar á útsöluverði.
Allalgengt er að gefið sé í skyn að hluti keyptra vara fáist ókeypis.
Til dæmis: tveir fyrir einn.
Flestir skilja vel hvað átt er við.
En þessa dagana er verslun í bænum að auglýsa tilboð á vörum sínum á Bylgjunni. Þar eru ekki boðnir tveir fyrir einn, heldur þrír fyrir tveir.” Ja, hérna! Kærar þakkir ábendinguna, Stefán.

ENN UM VERÐFELLINGU ORÐANNA

Í fimm fréttum Ríkisútvarpsins (29.01.2016) var okkur sagt að pólska þjóðin hefði verið í sárum eftir að hafa tapað handboltaleik á móti Króatíu með nokkuð miklum markamun. Pólska þjóðin í sárum??? Hvers vegna í ósköpunum er íþróttadeildin látin komast upp með þetta bull? Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti, sem þjóð er sögð í sárum eftir tapaðan boltaleik. Er engin verkstjórn á þessari fjölmennustu fréttastofu landsins?

 

 

 

GÖMUL PLATA

Segja sjálfsagt sumir. Ekki skal því neitað. Eða gömul vísa. Enn einu sinni riðlaðist dagskrá Ríkissjónvarpsins á föstudagskvöld (29.01.2016) vegna yfirgangs íþróttadeildar. Fréttir hófust tíu mínútum of seint. Hversvegna? Þjóðverjar og Norðmenn voru að spila handbolta í Póllandi. Norska ríkissjónvarpið, NRK1 sá ekki ástæðu til að sýna þennan leik. Heldur ekki NRK2. Og ekki heldur NRK3. Kannski þarf hvorki útvarpsstjóra, dagskrárstjóra né fréttastjóra. Íþróttadeildin sér bara um þetta.

 

PRÓFKJÖR

Nú fara í hönd prófkjör víða í Bandaríkjunum vegna næstu forsetakosninga. Þess vegna er kannski ástæða til að minna á, að ef. flt. af orðinu prófkjör er prófkjöra ekki prófkjara eins og stundum hefur sést.

http://bin.arnastofnun.is/leit/?q=pr%C3%B3fkj%C3%B6r

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>