«

»

Molar um málfar og miðla 1937

 

 

VEÐRUN ALMANNATRAUSTS

Lesandi benti Molaskrifara á þessa frétt á mbl.is (27.04.2016) og sagði, –  ,,Hefði ekki verið betra að birta frumtextann. Þetta er óskiljanlegt”. Fréttina er rétt að birta í heild: ,, Lög­reglu­stjór­inn í Suður-Jór­vík­ur­skíri í Bretlandi var leyst­ur frá störf­um í dag „í kjöl­far aðdrag­ana og út­gáfu Hills­borough úr­sk­urðar­ins“ hvers niðurstaða var að lög­regla bæri hluta ábyrgðar­inn­ar á slys­inu á Hills­borough leik­vang­in­um í Sheffield árið 1989 þar sem 96 áhang­end­ur Li­verpool létu lífið.

Lög­reglu­mála­stjóri Suður-Jór­vík­ur­skír­is, Alan Bill­ings, sá kjörni full­trúi sem fer með mál­efni lög­regl­unn­ar á svæðinu sagðist ekki hafa átt neinna annarra kosta völ en að leysa Dav­id Crompt­on frá störf­um „á grunni veðrun­ar al­manna­trausts.“ Molaskrifari þakkar ábendinguna. Enginn fullorðinn á vaktinni?  Molaskrifara varð á að hugsa: – Hvað hefði Matthías sagt?

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/04/27/rekinn_vegna_hillsborough/

LÆRISVEINARNIR FRÁBÆRU

Sigurður Sigurðarson sendi Molum eftirfarandi (25.04.2016): ,,Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar unnu frábæran sigur gegn Spánarmeisturum Barcelona, 29:24, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu í handknattleik í gær. Það var boðið upp á frábæran leik í Sparkassen-höllinni þar sem Kiel hafði undirtökin nær allan tímann. Staðan eftir fyrri hálfleikinn var 16:12, Kiel í hag, en strákarnir hans Alfreðs léku frábæran varnarleik með danska landsliðsmarkvörðinn Niklas Landin í fantaformi á milli stanganna.

 

Ofangreind tilvitnun er úr íþróttasíðu Morgunblaðsins 25. apríl 2016, sem Guðmundur Hilmarsson, blaðamaður, skrifar. Við þetta nafnorðastagl er hægt að gera nokkrar athugasemdir.

Leikmenn Kiel eru ekki lærisveinar þjálfarans, ekki frekar en Guðmundur er lærisveinn ritstjóra sinna. Á lærisveinum er þó klifað í mörgum íþróttafréttum Moggans og er þörf á að því linni enda röng notkun á orðinu.

Í öllum þessum þremum málsgreinum er klifað á að eitthvað hafi verið „frábært“. Svona suð nefnist nástaða og er ekki til fyrirmyndar.

 

Loks má nefna nafnorðastílinn. Fer ekki betur á því að skrifa að leikmenn verjist heldur en að leika varnarleik? Jú, vissulega þarf að hugsa betur um það sem er ætlunin að skrifa og taka sér tíma til að orða það betur. Vandinn er sá að margir blaðamenn, ekki bara íþróttafréttamenn, kunna ekki eða vita ekki hvernig hægt er að tjá hugsanir og viðburði á fjölbreyttan hátt.” Molaskrifari þakkar Sigurði þarfar ábendingar. Gott er að eiga góða að.

 

 

HANN ,HÚN EÐA HVAÐ?

Af mbl.is (25.04.2016) : ,, Viðkom­andi æst­ist enn frek­ar við að fá ekki að fara með vél­inni svo grípa varð til þess ráðs að flytja hana á lög­reglu­stöð til vist­un­ar þar til af hon­um bráði.” Þarna hefur fréttaskrifari eitthvað ruglast í ríminu! http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/04/25/fekk_ekki_ad_fljuga_vegna_olvunar/

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>