«

»

Lesið á biðstofu læknisins

 Beið í þrjá stundarfjórðunga á læknabiðstofu  í dag  meðan mér nákominn var í læknisrannsókn. Á biðstofunni lá  frammi  svokallað  tekjublað Frjálsrar verslunar frá 2007. Ég  stytti mér  stundir  við að skoða það.

  Þaðr  voru  einstaklingar  með  allt upp í rúmlega  60 milljónir  króna í mánaðarlaun.  20-30 milljónir margir,  enn  fleiri milli  10 og  20  milljónir á mánuði og aragrúi með  laun  á  bilinu  4 til 10milljónir.

 Eitt var athyglisvert. Allir  þessir tekjuháu margmilljónerar  árið 2007  unnu  fyrir fyrirtæki sem nú eru farin  til  fjandans,horfinn  komin á  hvolf  og sum átt mikinn þátt í að setja  þetta þjóðfélagið okkar  á hliðina. Aukinheldur  komið  fjölda  fólks á  vonarvöl.. Þetta  var og er mér  umhugsunarefni. En  eina niðurstaðan  sem ég kemst að  að á þessu  tímabili  hafi  búið galin þjóð í þessu landi. Og bönkum  stjórnað af mönnum sem heldur hefðu átt að  vinna í bakaríum (með fullri virðingu fyrir bökurum) og að landinu hafi verið  afspyrnu illa stjórnað.   Ég  er ekki að segja að þessir menn hafi allir brotið lög. En þeir ganga allir  lausir , – enn að minnsta kosti.

 Eftir þennan lestur var  bara einn maður , aðeins einn ,  sem ég hafði ríka samúð með. Það var Árni Johnsen  alþingismaður. Hann hafði haft 80 þúsund krónur í  mánaðarlaun. Segir og  skrifa  áttatíu þúsund. Eyjamenn hljóta stundum að hafa gefið honum í  soðið, hengt  fiskspyrðu á hurðarhúninn á  útdyrahurðinni á höllinni hans í Eyjum.

5 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Hildur Helga Sigurðardóttir skrifar:

    Þetta var -og er- einfaldlega BILUN

  2. Eygló skrifar:

    Eftir lesningu um launakjör þessi, ættum við enn frekar að hafa dýpstu samúð með formanni Framsóknarflokksins. ÉG hef úr meiru að moða.  Blessaðir smáfuglarnir.

  3. Steini Briem skrifar:

    Birgitta Jónsdóttir, átti þetta að sjálfsögðu að vera.

  4. Steini Briem skrifar:

    Árni Johnsen sat inni um tíma fyrir kantsteinastuld og hefur þá trúlega einungis haft tekjur af grjótinu sem hann hafði með sér úr steininum á Kvíabryggju en hann seldi það hjá frænda sínum í Keflavík, þar sem sjálfstæðismenn hylltu meistarann.

    Árni Johnsen var með 582 þúsund krónur í mánaðarlaun í fyrra, árið 2008, og hinn barngóði vinur hans, séra Gunnar Björnsson, þá prestur á Selfossi, var með 569 þúsund, Ólafur Ragnar Grímsson 1,839 milljónir króna, Tryggvi Þór Herbertsson 2,946 milljónir, Geir H. Haarde 1,387 milljónir, Árni Mathiesen 1,191 milljón, Katrín Jakobsdóttir 521 þúsund krónur, Þráinn Bertelsson 641 þúsund, Þór Saari 188 þúsund, Margrét Tryggvadóttir 193 þúsund, Vigdís Hauksdóttir 187 þúsund, Birgitta Hauksdóttir 126 þúsund, Ásmundur Einar Daðason 106 þúsund og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 33 þúsund krónur.

    Sjá Tekjublað Frjálsrar verslunar 2009.

    Árni lokaleikinn vann
    á lífsins peyjamóti:
    Úr formennskunni fer nú hann
    með fulla vasa af grjóti.

    Þórarinn Eldjárn

  5. Kama Sutra skrifar:

    Með núverandi dómara í dómskerfinu – handvaldir af náhirðinni – mun ekki verða hróflað við þessum aðilum sem komu þjóðinni á vonarvöl.  Nema kannski Jóni Ásgeiri.  Hinir munu halda áfram fyrri iðju að vinna skemmdarverk gegn þjóðinni, óáreittir.

    Hið „Nýja Ísland“ er fjarlægur, útópískur draumur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>