Nýlega var sá sem þessar línur skrifar á mannamóti þar sem rætt var um Staksteina Morgunblaðsins. Sýndist sitt hverjum.
Einn viðstaddra hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði að Staksteinar væru eins og ræður á menntaskólamálfundi, eða greinar í gömlu skólablaði. Nokkuð til í því. Ekki síst þegar litið er á Staksteina dagsins þar sem Jóhannes í Bónus er kallaður Jóhannes kærari. Höfundur er að reyna að vera fyndinn á kostnað Jóhannesar skírara. Þetta er aulafyndni sem þó fellur sennilega í kramið hjá náhirðinni.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
PALL PÁLSSON skrifar:
04/07/2011 at 14:36 (UTC 0)
takk eidur þú fyllir mig von