Lifandis ósköp er það fánýtt hjal að starfsheitið ráðherra snerti jafnréttismál með einhverju móti. Við tölum um móðurmál og föðurland.
Konur geta verið drengir góðir , eins og frægt er um Bergþóru Skarphéðinsdóttur.
Drengskapur er ekki kynbundinn.
Verður næst lagt til atlögu gegn þessu ?
Samkvæmt íslenskri málvenju fornri og nýrri eru konur menn.
Mælst er til þess að þingmenn látið móðurmálið sem mest í friði.
Málfari verður seint ráðið með lögum.
En hvað hefði Þuríður formaður sagt?
Skildu eftir svar