«

»

Molar um málfar og miðla 283

Stundum verður óskiljanlegur talnaruglingur í fréttum. Morgunblaðið segir (05.04.2010) frá kínversku kolaskipi er strandaði undan ströndum Ástralíu:  950 þúsund lestir af olíu eru um borð í skipinu, sem var að flytja kol til Kína þegar það strandaði.  Hvernig skyldi kolaflutningaskip, sem er með 950 þúsund lestir af olíu innanborðs líta út?  Auðvitað hafa þetta  verið  950 lestir. Skrifað án hugsunar. Sama henti  Ríkisútvarpið í annarri  skipafrétt (05.05.2010) á þessum sama sólarhring.  Sagt var frá suður kóresku olíuskipi,sem sómalskir sjóræningjar náðu á sitt vald. Í frétt sem  margendurtekin var frá miðnætti var alltaf sagt  að í  skipinu væru tvær milljónir tonna af olíu.  Þetta hefur samkvæmt  því  ekki  verið nein smáfleyta. Enda sagði um skipið  í fréttinni: Það er 333 metrar á lengd og 319.000 tonn að stærð. Það  var svo loks í sjö fréttum um morguninn að  menn voru farnir að hugsa sæmilega skýrt í Efstaleitinu.  Þá var réttilega sagt ,að í skipinu væru tvær milljónir tunna af olíu. Eitt  er tonn annað er tunna.

 Fréttamönnum RÚV er einstaklega lagið að spyrja viðmælendur sína spurninga,sem ógerlegt er að svara.  Vikið var að þessu í nýlegum  Molum  varðandi  viðtal við vísindamann um gosið á   Fimmvörðuhálsi. Í hádegisfréttum (04.04.2010) var fjallað um deilu unglækna á Landspítalanum. Þá spurði  fréttamaður, efnislega: Kalt mat, Hvenær leysist deilan?   Bjóst  fréttamaðurinn við að svarið yrði : Á miðvikudaginn klukkan kortér yfir  fjögur !

Á dv.is halda einföldustu atriði málfræðinnar áfram að vefjast fyrir mönnum. Úr dv. is (04.04.2010):  …að þeir sem leggja leið sína um svæðið stafar hætta af sprungunni. Þarna á auðvitað að standa: .. að þeim sem leggja leið sína um svæðið stafar hætta af sprungunni.

Á leiðinni niður sáum við hraunsúluna í loft upp, hún var farin að spýja það hraustlega. Lýsing blaðamanns Morgunblaðsins á eldgosinu á Fimmvörðuhálsi (mbl.is 01.04.2010)

…flugóhapp varð á Fimmvörðuhálsi í síðustu viku án þess að slys urðu á fólki. (mbl.is. 02.04.2010)Kannski ættum við að láta Mogga njóta vafans og  segja,að þetta sé innsláttarvilla. 

Í kvöldfréttum RÚV (01.04.2010) var talað um að kappkosta um að sverta nafn sitt... Það er ekki venjulegt að tala um að kappkosta um eitthvað  heldur einungis að kappkosta.

 Nú orðið geta fréttamenn ekki vitnað í neinn  eða haft ummæli eftir  einhverjum öðru vísi en að segja: Samkvæmt þessum og samkvæmt  hinum.  Auðvitað er ekkert að því að segja:  Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Ekki samkvæmt lögreglunni.  Samkvæmt  sýslumanninum, er ekki í lagi.  Að sögn  sýslumannsins…Eða Jón Jónsson sýslumaður segir… En það er með þetta eins og svo margt annað að étur hver  eftir öðrum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>