Molaskrifari er einkar íhaldssamur. Hann hefur jafnan hlustað á morgunfréttir RÚV oftast bæði klukkan sjö og átta. Hann hefur nú uppgötvað að morgunfréttir Bylgjunnar eru oftast betri. Betra er seint en aldrei, segir líklega einhver. Starfsmannafjöldi og mikill kostnaður við fréttastofu skiptir ekki sköpum í þessu tilliti.
Fréttir Bylgjunnar klukkan tólf á hádegi eru líka ágætar. RÚV er með stutt fréttaágrip virka daga klukkan tólf á hádegi. Hversvegna ekki á laugardögum og sunnudögum ? Hversvegna eru ekki fréttir á sömu tímum um helgar og á virkum dögum? Er ekki fólk á vakt? Hið nýja hádegisútvarp, sem tekur við af fréttaágripinu klukkan tólf hefur hvorki orðið fugl né fiskur, – ekki ennþá allavega. RÚV heldur sig enn við að vera með aðalfréttatíma dagsins klukkan 12 20. Þetta var víst upphaflega hugsað þannig, meðan allir fóru heim í hádegismat, að menn næðu fréttum og gætu svo farið aftur til vinnu klukkan 12 45. Nú fara menn ekki lengur heim í hádegismat en RÚV situr fast í þessar tímasetningu.
Hvað fór ykkar á milli ? Svona spurði fréttamaður RÚV sjónvarps yfirlögregluþjóninn á Hvolsvelli í viðtali um leitina að fólki sem hafði yfirgefið bíl sinn á öræfum, með hörmulegum afleiðingum eins og síðar kom í ljós. Hvað fór ykkur í milli?, hefði fréttamaður átt að segja. Fréttastofa ríkisins gerir ekki alltaf miklar kröfur um málfar fréttamanna.
Stofnanamáls sér víða stað. Í þættinum Samfélagið í nærmynd, þar sem oft er áhugavert efni (RÚV 31.03.2010), var rætt við formann Landsbjargar um björgunarsveitir og eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Í þættinum talaði umsjónarmaður um að margt hefði breyst frá því síðast varð stórgos hér á landi. Hann sagði: „…almenningur er orðinn meiri… umfangsmeiri stærð.“ Hann átti við að fólki hefði fjölgað.
Tollvörðum á John Lennon-flugvellinum í Liverpool á Englandi grunaði að ekki væri allt með felldu ….Stóð í dv.is (06.04.2010). Tollvörðum grunaði…. Átti að vera: Tollverði grunaði…
Enn koma aðilar við sögu. Úr mbl.is (06.04.2010): Stillt var til friðar og að því loknu var aðili færður til yfirheyrslu. Lögregla kom nefnilega auga á poka með ætluðu maríjúana inni í íbúðinni sem lagt var hald á. Molaskrifara fellur líka illa að sjá talað um ætlað maríjúana.
Alþingismaður, sem reyndar er mikill bögubósi, talaði í útvarpsviðtali (RÚV 06.04.2010) um að … biðja afsökunar fyrir að hafa tekið þátt… Fólk biðst afsökunar á einhverju, ekki fyrir eitthvað.
Hvað annað fólst í aðkomu Íslendinga að myndbandinu skelfilega frá Bagdad, en að hlusta grannt á það sem sagt var og og semja neðanmálstexta ? Fjölmiðlar gera mikið úr aðkomu RÚV og tiltekins þingmanns. Það var svo sannarlega þarft verk að birta þetta, en hvað annað var gert en að þýða textann ? Það hefur hvergi komið fram.
Skildu eftir svar