«

»

Molar um málfar og miðla 290

  Eftirfarandi snilldarsetning er  úr dv. is (15.04.2010): Talið er útilokað að hann sé ekki borgunarmaður fyrir skuldinni.Hér hefur blaðamaður  líklega ætlað að skrifa : Talið er útilokað, að hann sé borgunarmaður fyir skuldinni. Tvöfalda neitunin snýr merkingunni við.  Kannski er þetta rangt hjá Molaskrifara

 Í fréttum RÚV var (15.04.2010) sagt frá kosningabaráttu í   Bretland og talað um tvær aðrar kappræður.  Tala hefði átt um tvennar kappræður, þar sem um fleirtölu orð er að ræða.

 Í Skólahreysti í RÚV sjónvarpi var tekið svo til orða,að  tilteknum skóla hefði tekist að  skjóta ….skóla fyrir aftan sig. Molaskrifari þykist hafa heyrt talað um að einhverjum takist að skjóta  öðrum  aftur fyrir sig,  í merkingunni að fara fram fram úr eða hafa betur. 

Úr dv.is (15.04.2010):..einhverjir nemendur MS ákváðu að fylla anddyri Verzlunarskólans af hestaskít.  Hvað varð um hið ágæta orð hrossaskítur ?

Úr visir.is (15.04.2010):  Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Hvolsvelli kemur fram að verið sé að loka Mýrdalsjökli vegna öskufalls. Hann er svo sannarlega ekki valdalaus, lögreglustjórinn á Hvolsvelli !

Úr mbl.is. (15.04.2010): Vegagerðarmenn hafa flutt tæki að Markarfljóti og eru að undirbúa sig undir að gera við hringveginn..  Hér  hefði nægt að segja að  vegagerðar menn væru að búa sig undir að gera við hringveginn , — ekki undirbúa  sig undir.

Þetta var fremur þunnur þrettándi. Fer  kannski málfar batnandi  í fjölmiðlum.  Ekki sér Molaskrifari betur en Moggi (16,04.2010) en landið sé að rísa hjá Mogga. Blaðið  gerir  hamförunum  fyrir austan vönduð og ítarleg skil frá mörgun sjónarhornum. Kannski er Eyjólfur að hressast. Svona var þetta í gamla daga, fjölmenn og gott  starfslið,sem sótti fram í einni fylkingu undir  sameiginlegri herstjóri, Matthíasar, Styrmis og Bjössa Jóh

 Athugasemdir  Frá ESG

 

1 Margar klaufavillur í lokasetningu, sem slappundanPÚKA, …. fjölmennt og gott starfslið ,sem sótti fram í einni fylkingu undir sameiginlegri herstjórn Matthíasar, Styrmis og vinar míns  Bjössa Jóh 

Eiður Svanberg Guðnason, 16.4.2010 kl. 10:05

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>