«

»

Molar um miðla og málfar 296

Í leiðréttingu í Fréttablaðinu  (28.04.2010) segir: Þar víxluðust vörumerki Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Vörumerki?  Af hverju ekki flokksmerki?

  Í  hádegisfréttum RÚV (23.04.2010) var  fjallað um hugmynd umhverfisráðherra  um bann við hreindýraveiðum og rjúpna- og  gæsaveiðum á tilteknum svæðum í Vatnajökulsþjóðgarði. Viðmælandi fréttastofu sagði að bannið væri tilhæfulaust.  Að eitthvað sé tilhæfulaust , þýðir að það sé upplogið, ekki fótur  fyrir því. Hann átti við að bannið væri tilefnislaust. Það er allt annar handleggur.

 Í fréttum Stöðvar tvö (25.04.2010) var sagt frá öskuhreinsun á bæjum undir Eyjafjöllum Þá  sagði fréttaþulur …. böru eftir  böru eftir böru af blautri eldfjallaösku.  Hér var átt við hjólbörur, en orðið börur  er ekki til í eintölu.  Hefur einhver  heyrt talað um hjólböru?

 Úr dv.is (23.04.2010): Stefán segir að hann hafi ekki haft neina persónulega hagsmuni að gæta í þessu máli . Þetta orðalag er út úr kú. Hér ætti að standa: Stefán segir að hann hafi ekki haft neinna persónulegra hagsmuna að gæta í þessu máli.

 Fréttamaður  og  viðmælandi  ( í hádegisfréttum RÚV 24.04.2010) kusu báðir að beygja ekki heiti  hins heilsulausa (framliðna) sparisjóðs Byrs. Annar sagði: Stærsti kröfuhafi Byr … hinn Staða  Byr…

 Andstætt því sem sumir halda er orðið uppgjör ekki fleirtöluorð. Það er aðeins til í eintölu.

Ágætt  þótti  Molaskrifara, þegar í fréttum heyrðist að formaður Framsóknarflokksins sagðist biðjast margfaldlega afsökunar á framferði flokks síns og forráðamanna hans (2404.2010). Í fréttum hafði nefnilega verið margsinnis sagt, að hann hefði beðist  margfalt afsökunar,sem er málleysa  fréttamanna. Nú hljóta fleiri að fylgja í kjölfarið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>