Mjög orkar það tvímælis, þegar Ríkisútvarpið lætur fólk flytja okkur tónlistarfréttir (hádegi 13.05.2010), sem kann ekki að bera fram nafn hin kunna tékkneska tónskálds Antonins Dvoráks (1841 – 1901) Einhver á tónlistardeildinni hlýtur að geta kennt fréttamönnum að bera fram nöfn þekktustu tónskálda heimsins.
Samsetta myndin af Hreiðari Má Sigurðssyni í fangabúningi, sem Stöð tvö birti í fréttum (13.05.2010) er nýtt met í sóðablaðamennsku hjá Stöð tvö. Þessi myndbirting ber ekki bara vott um dómgreindarleysi heldur sjaldgæfan ritstjórnarlegan subbuskap.
„…enda hafi gríðarlegt tjón verið framið gagnvart íslenskum neytendum“, sagði fréttaþulur Stöðvar tvö í kvöldfréttum (13.05.2010). Það er rangt að tala um „að fremja tjón“ . Tjón verður, eða eitthvað eða einhver veldur tjóni. Hér hefði mátt segja, að íslenskir neytendur hefðu orðið fyrir gríðarlegu tjóni. Máltilfinning er ekki sterkasta hlið þeirra á Stöð tvö.
Molaskrifara þykir líklegt að margir hafi sperrt eyrun þegar hæstaréttarlögmaður sagði (13.05.2010) að Jón Ásgeir Jóhannesson væri eignalaus maður. Hver trúir því? Hvert fóru allir aurarnir ? Og svo talar annar bankabófinn um „rannsóknargeggjun“. Það vantar ekki kjaftinn á keiluna, eins og þar stendur.
Aldrei fellir Molaskrifari sig við orðatiltækið, að vera á tánum í merkingunni að vera á varðbergi. Slæmt þótti honum að heyra dómsmálaráðherra landsins tvísegja þetta í stuttu viðtalið (RÚV 14.05.2010)
Í fyrirsögn í Morgunblaðinu (14.05.2010) segir: Sleitulaust öskufall. Þetta er vissulega ekki rangt, en fallegra hefði Molaskrifara þótt að segja: Linnulaust öskufall.
Beygingakerfi tungunnar á í vök að verjast. Eftirfarandi eru úr auglýsingu í Fréttablaðinu (14.05.2010) Leitum eftir starfsfólki í veitingarsal (Svo!) og vanan matreiðslumann í allt sumar. Það væri til bóta að prófarkalesa auglýsingar.
Alþjóðlegt dömp, segir í fyrirsögn í Fréttablaðinu (14.05.2010). Ljótt.
Skildu eftir svar