Gleðilega hátíð !
Í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu (17.06.2010) um dagskrá þjóðhátíðardagsins í höfuðborginni segir að milli klukkan 13 00 og 16 00 sé Hópakstur Krúsers og síðan sýning. Krúserbandið leikur. Hefði Jón Sigurðsson skilið þetta? Áreiðanlega ekki. Hér hafa menn tekið enska orðið cruiser og , skrifað það eftir framburði og nota það um stóra bandaríska fólksbíla, dreka frá sjötta og sjöunda áratugnum. Bandaríkjamenn kalla þessa bíla ekki cruisers, það orð er einna helst notað um lögreglubíla, sem sinna eftirliti og útköllum, eða leigubíla, sem hringsóla í leit að farþegum. Ósköpin ná svo hámarki þegar enska fleirtöluessið er sett á orðið þannig að úr verður krúsers. Um orðið Krúserbandið er lítið annað að segja að þar eru á ferð tvö ensk orð sem verið er að troða inn í íslensku og þar lætur Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur ekki sitt eftir liggja.
Gott var að heyra Björn Malmquist fréttamann taka svo til orða í frétt um skiptingu embætta í borgarstjórn Reykjavíkur (15.06.2010), að ekki væri vitað hvort Hanna Birna mundi þekkjast það boð, – að verða forseti borgarstjórnar.
Íþróttafréttamaður Ríkisútvarps sagði í hádegisfréttum (14.06.2010) … valið fór fram af íþróttafréttamönnum. Íþróttafréttamenn völdu… hefði hann betur sagt.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar (14.06.2010) var talað um meiri fjölda = fleiri.
Þannig sagði Morgunblaðið frá ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins í eldhúsdagsumræðunum (14.06.2010): Bjarni Benediktsson telur að í kjölfar hrunsins hafi ekki verið við öðru að búast en að traust til Alþingis myndi rýrast.Stöðugt rýrnar traust mitt á íslenskukunnáttu þeirra,sem skrifa fréttir til birtingar á mbl. is. Þeir eru sumir heldur rýrir í roðinu.
Beygingarnar vefjast fyrir þeim á visir,is (14.06.2010): Bæði hann og eiginkonu hans, Leonie, er boðið í brúðkaup Viktoríu á laugardaginn kemur. Hann er ekki boðið, heldur er honum boðið. Heldur slöpp frammistaða, Vísismenn.
Fréttamat fréttastofu Ríkisútvarpsins er oft svolítið einkennilegt. Í fréttum af eldhúsdagsumræðunum,sem fram fóru að kveldi 14. júní var það fyrsta frétt í nokkrum fréttatímum, að formaður Sjálfstæðisflokks hafði sagt að Alþingi nyti ekki trausts. Næsta var sagt frá ummælum formanns Framsóknarflokksins. Þar var ekkert sem hann hafði ekki margsagt áður. Ummæli fjármálaráðherra um þinglok og einkavæðingu vatns voru hinsvegar það eina sem var fréttnæmt úr ummælum þessara þriggja ræðumanna.
Versti útvarpsþátturinn á öldum ljósvakans um þessar mundir , er örugglega þáttur Guðmundar Franklíns Jónssonar í Útvarpi Sögu. Þar fer saman glórulaust ofstæki, ósannindi, fáfræði og fordómar. Dæmi: Íslenska þjóðveldið var stofnað 17. júní 930 ! Og: Hver er eiginlega munurinn á að kvænast og giftast? Lágkúran í þessum þætti varð einna mest er umsjónarmaður ræddi við þingmann Framsóknarflokksins, Vigdísi Hauksdóttur nýlega.
Skildu eftir svar