Hún sigraði Júróvisjónkeppnina, sagði umsjónarmaður poppþáttarins, sem sjónvarp ríkisins býður okkur upp á á laugardagskvöldum. Sigraði keppnina. Það var og.
Á vef Ríkisútvarpsins (03.07.2010) stendur:… og fyrsta skóflustungan af nýju gróðurhúsi var tekin. Hér er ruglað saman forsetningunum að og af. Ekki er tekin skóflustunga af nýju gróðurhúsi, heldur að nýju gróðurhúsi.
Árni Johnsen alþingsmaður tekur stundum einkennilega til orða. í Morgunblaðinu (03.07.2010) er haft eftir honum: Ekki þykir einleikið að í Eyjum skuli ekki vera til bygging eftir þessa rómuðu dóttur Eyjanna. Molaskrifari hnaut um orðið einleikið í þessu samhengi. Þegar sagt er að eitthvað sé ekki einleikið, þá skilur Molaskrifari það svo að eitthvað sé ekki með felldu. Það er ekki einleikið hvað hann er dettinn. Það er ekki einleikið hvað hann lendir oft í árekstrum. Nú má vel vera að þetta sé hárrétt hjá Árna, þótt Molaskrifara komi það spánskt fyrir sjónir.
Tær Moggasnilld, – tær snilld (mbl.is 03.07.2010): Nú í eftirmiðdegið var svo einn stöðvaður fyrir of hraðan akstur og reyndist þá ekki vera með ökuréttindi, enda hafði hann misst þau og var ekki búinn að taka bílprófið aftur. Var bíll hans ferjaður á lögreglustöðina á Blönduósi. Úr sömu frétt: …sá sem hraðast ók var á 128 kílómetra hraða yfir klukkustund. Meira úr sömu frétt: …en ekkert lögregluembætti sem upplýsingar fengust frá nú í eftirmiðdegið hafði þurft að takast á við nein umferðarslys. Enn meira úr sömu frétt:… Lögreglan á Hvolsvelli segir að útihátíðin í Galtalæk .…. Einmitt það. Í Galtalæk. Málvenja er að segja á Galtalæk, á Rauðalæk, á Læk. Hinsvegar hefði mátt segja: Útihátíðin í Galtalækjarskógi….
Á hvaða leið er Mogginn eignlega ? Allavega ekki á uppleið.
Skildu eftir svar