Úr dv. is (05.07.2010) : „Fyrir mína parta er ég hér að mótmæla afskiptum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að ríkiskassanum,“ segir Birgitta (Jónsdóttir). Sumum þingmönnum er annað betur gefið en að vanda málfar sitt. Hér ruglar þingmaðurinn saman forsetningunum að og af,sem orðið er ótrúlega algengt.
Málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins skrifar grein í Fréttablaðið (07.07.2010) og segir þar meðal annars: „Raunar má halda því fram að sú málumvöndun sem mest er stunduð undir merkjum málvöndunar og málræktar, sé ekki aðeins til marks um staðnaðan hugsunarhátt heldur vinni gegn markmiðum um bætta málnotkun því að athyglin beinist fyrst og fremst að því neikvæða“.
Það mætti því spyrja sem svo , eiga þá kennarar að hætta að leiðrétta stíla, því athyglinni er þá beint að hinu neikvæða? Undir ýmislegt má taka af því sem málfarsráðunautur segir, en hitt er miður, að hin svokallaða reiðareksstefna í málfarsefnum skuli nú komin með fasta búsetu í Efstaleitinu. Það er ekki af hinu góða og vekur spurningu um hvort málfarsráðunautur hafi þá nokkuð að gera við Ríkisútvarpið?
Molaskrifari mun halda sig við sinn staðnaða hugsunarhátt, sem svo er kallaður Efstaleitinu. Þar þykir sjálfsagt í góðu lagi að tala um starfsmenn dýragarðarins eins og sagt var við okkur áheyrendur og áhorfendur í fréttum sjónvarps ríkisins (06.07.2010). Það er líklega bara af hinu góða, en svo læra börnin málið,sem fyrir þeim er haft. Það ættu reiðareksmenn að hafa í huga.
Svo virðist á stundum sem það sé hluti af ritstjórnarstefnu Útvarps Sögu að hampa þeim,sem efna til óláta. Að morgni dags (06.07.2010) var viðtal við kunna söngkonu vegna óláta við anddyri Seðlabankans daginn áður. Söngkonan hafði neitað að fara tilmælum lögreglum og færa sig. Lögreglumaðurinn tók um handlegg hennar, líklega fullfast , því konan fékk marblett og fór á Bráðamóttöku Landspítalans til að láta gera að sárum sínum. Vörubrettum og öðrum eldsmat hafði verið komið fyrir við anddyri Seðlabankans og vökva hellt yfir. Kona beindi kveikjara að kestinum. Þá lét lögreglan til skarar skríða. – Þetta var enginn bálköstur, sagði söngkonan og konan með kveikjarann var bara að grínast!!! Hvernig á að vera hægt að taka svo ummæli alvarlega ? Eða ummælin um AGS: Mafía og glæpamenn. Hverjir báðu um aðstoð AGS? Íslensk yfirvöld af því að við vorum ófær um að koma okkur hjálparlaust úr því ógurlega klandri sem misvitrir stjórnmálamenn og bankaræningjar höfðu komið okkur í.
Í fréttum af sömu atburðum var líka sagt frá konu,sem kastaði grjóti að lögreglunni. – Ég hitti ekki , sagði hún, eða dró ekki nógu langt. Hún ætlaði sér að kasta grjóti í lögreglumennina. Það er svo annar handleggur, sem kannski kemur fólki ekkert við, en mörgum hefur áreiðanlega komið á óvart að heyra í þessari umfjöllum að kona, sem segist vera öryrki skuldi tvö bílalán að upphæð samtals 10 milljónir króna.
Fjölmiðlafrelsi fylgir ábyrgð það ættu allir forráðamenn fjölmiðla að hafa í huga.
Skildu eftir svar