Glöggur lesandi, benti Molaskrifara á eftirfarandi setningu ( Pressan.is 07.07.2010): Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs tók meðfylgjandi mynd af vinnuvélum,sem fjarlægðu kerið á leið til dagmömmu í dag. Skyldu vinnuvélarnar hafa streist á móti þegar Dagur tók af þeim myndina? Voru vinnuvélarnar lengi á leiðinni til dagmömmu? Þetta hefði að sjálfsögðu átt á koma fram í frétt Pressunnar.
Í morgunþætti Rásar eitt (09.07.2010) var sagt frá kappflugskeppni bréfdúfna. Nægt hefði að tala um kappflug. Kappflug er keppni.
Í fréttum Ríkisútvarpsins (08.07.2010) klukkan 16 00 var ýmist sagt: .. í Neskaupstað eða á Neskaupstað. Venja er að nota forsetninguna í með orðinu kaupstaður. Í aðalkvöldfréttatíma þetta sama kvöld var sagt: … á Borgarnesi.Föst málvenja er að segja í Borgarnesi, en á Akranesi. Á tímum hins óumræðilega umburðarlyndis í Efstaleitinu geta menn nu líklega bara valið sér forsetningar að vild með íslenskum staðanöfnum , – samkvæmt þessu. Í fréttum Stöðvar tvö (08.07.2010) var talað um að skrúðgarður hefði verið reistur á Klambratúni í Reykjavík. Allt reisa menn !
Stundum er hægt að skemmta sér yfir Mogganum. Hér áður fyrr, þegar sagt var frá mótmælum hernámsandstæðinga, voru lægstu þátttakendatölurnar ævinlega í Mogganum, en þær langhæstu í Þjóðviljanum. Nú um stundir, þegar sagt er frá mótmælum fyrir utan Seðlabankann eða Stjórnaráðshúsið við Lækjartorg, eru hæstu tölurnar í Mogganum. Ekki lýgur Mogginn, – eða hvað ? En hann hefur tekið að sér hlutverk gamla Þjóðviljans, t.d. með því að leggja tiltekna einstaklinga í einelti.
Ríkissjónvarpið leggur sitt af mörkum til að auka beygingarfælni þegar á skjánum birtist fyrirsögnin: Félagar úr Hornleikarafélag Íslands. Molaskrifari hættir á að benda umsjónarmanni hins svokallaða hádegisútvarps á Rás eitt á að orðið dóttir beygist: dóttir, dóttur, dóttur dóttur. En honum er ljóst að svona ábending ber auðvitað vott um bæði staðnað hugarfar og skort á umburðarlyndi. Á gönguferð við Vífilsstaðavatn rakst skrifari á skilti frá Garðabæ sem letrað var á að að bannað væri að veiða frá bakkanum vegna varp flórgoðans. Þarna vantaði eitt -s , sem skiptir máli.
Það er rangt , þegar fréttaþulur Ríkissjónvarpsins segir okkur að Ríkisútvarpið flytji okkur fréttir allan sólarhringinn. Ríkisútvarpið flytur stuttar fréttir á Rás 2 klukkan 02 00. Síðan er enginn fréttatími fyrr en klukkan 05 00. Ekki verður heldur séð að fréttavefur RÚV á netinu sé uppfærður milli klukkan tvö á nóttunni og fimm á morgnana. Ríkisútvarpið veitir ekki fréttaþjónustu allan sólarhringinn. Hversvegna er okkur sagt ósatt ? Okkur var líka sagt ósatt um það hver kostaði ferð Kristins Hrafnssonar fréttamanns til Íraks fyrr á árinu. Ein útgáfan kom frá útvarpsstjóra, önnur frá Kristni og sú þriðja frá Birgittu Jónsdóttur alþingismanni sem var einhverskonar umboðsmaður Wikileaks gagnvart Ríkisútvarpinu.
Ríkisútvarpið á að segja eigendum sínum satt.
Skildu eftir svar