«

»

Molar um málfar og miðla 503

Yfirdrifið af snjó í Hlíðarfjalli, segir í  fjögurra dálka fyrirsögn á  baksíðu Morgunblaðsins                      (14.011.2011)  Molaskrifari er á því að betri fyrirsögn hefði verið: Nægur snjór í Hlíðarfjalli.

… voru síðan dæmdir í gæsluvarðhald til 25. og 21. janúar næst komandi… Af pressan.is (14.01.2011).  Það er ekki svo, að menn séu dæmdir í gæsluvarðhald. Kveðinn er upp gæsluvarðhaldsúrskurður. Þetta eiga þeir sem  skrifa fréttir  að hafa á hreinu.

 Blæða ekki hjörtu landsmanna? Spyr bloggari  (14.01.2011) . Sögnin að blæða er hér ópersónuleg, – einhverjum blæðir,   blóð rennur  úr einhverjum. Þessvegna ætti að standa hér: Hjörtum landsmanna blæðir.  Ég  skal blæða. Er hinsvegar slangur , eða óformlegt mál. Ég skal borga. Ég blæði.

  Stjarna er fædd, sagði kynnir í Kastljósi  Ríkissjónvarpsins (14.01.2011).  Enskusletta þýdd á íslensku. Geturðu sett  fingurinn á það?   Sagði sami  sjónvarpsmaður.  Líklega liggur enska  betur  fyrir  þessum sjónvarpsmanni en íslenska.

 Vissulega starfa íþróttafréttamenn  hjá Ríkisútvarpinu, sem eru ágætlega máli farnir  en það  gildir  ekki um þá  alla. Ekki þann sem sagði í sexfréttum   Ríkisútvarpsins (14.01.2011):  Aðgangseyrir  fyrir almenning  á upphafshátíðina er ókeypis.  Aðgangseyrir er ekki ókeypis. Aðgangur er ókeypis. Þetta er ekkert mjög flókið.

  Molaskrifari heyrði aðeins í Útvarpi  Sögu á laugardagsmorgni (15.01.2011). Það staðfesti ,að enn er þar verið að ljúga að þjóðinni. Þar var á ferðinni verðbréfasalinn frá New York sem  fullyrti enn einn ganginn að 98% þjóðarinnar hefðu verið á móti Icesave samningnum,sem fór í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það voru 98% þeirra sem greiddu atkvæði. Allt annar handleggur. Kannski kann maðurinn ekki á prósentur. Það eru þjóðhættulegir miðlar, sem ljúga að hlustendum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>