«

»

Molar um málfar og miðla 530

 Undarlegt orðskrípi var í þeim dálki Fréttablaðsins sem heitir Frá  degi til dags (11.02.2011). Þar var sagt: … hefur hann í marggang furðað  sig á því…  Hér hefði    sá sem  hélt á penna  átt að segja til dæmis:  .. hefur hann margsinnis,  hefur hann oft, hefur hann iðulega, hefur hann einatt — fleira  mætti  til taka.  Ekkert  er að því að  tala um tvígang eða þrígang. Ekki marggang. Sú  er að minnsta kosti skoðun Molaskrifara.

 Hann segir kominn tími á að Ísland yfirtaki kraftaheiminn aftur… sagði umsjónarmaður þáttarins Ísland í dag á Stöð tvö (11.02.2011). Ekki  mjög vel orðað. Betra hefði verið: Hann segir tíma til kominn að Ísland  láti á  ný til sín taka  á  sviði aflrauna í veröldinni.

Molaskrifari er ekki sáttur við það ,þegar fólk   sífellt talar um að vinna  vinnuna sína, eins og einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar   sagði  tvisvar í fréttum Ríkissjónvarps í kvöld (11.02.2011)

 Fjöldi fólks dreif að slysinu… var sagt í fréttum Stöðvar tvö (011.02.2011). Rétt hefði verið að  segja: Fjölda fólks dreif að.  Einhverja  drífur að.

  Við  hlið orðsins  áhafnarmeðlimur,sem vel dafnar í Efstaleiti, eins og vikið var að í síðustu Molum, blómstrar annað orð,sem gera ætti útlægt úr fréttum. Það er hinn alræmdi ársgrundvöllur, sem enn einu sinni skaut upp kollinum í fréttum  Ríkissjónvarps (12.02.2011). Þar heyrðist líka annað ( sem ekki ætti að heyrast: … að eignir  rýrðust ekki.  Hefði átt  að vera: ..  að eignir rýrnuðu ekki.

  Í íþróttafréttum Stöðvar  tvö (12.02.2011) sagði íþróttafréttamaður ( og ekki í fyrsta skipti) … taka þátt   á mótinu. Íþróttamenn taka þátt í mótum  –  ekki á mótum

   Heyrðu lögin, sem keppa í kvöld í Eurovision, segir í dv.is. Rétt er hinsvegar fyrirsögnin, þegar skoðað er áfram . Þá segir: Hlustaðu á lögin ….

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>