Í grein í DV er skýrt frá því (23.03.2011) að gjaldþrot Seðlabankans sé fimmfalt Icesave. Beinhörð útgjöld vegna gjaldþrots Seðlabankans hafi numið 175 milljörðum króna og gjaldþrot Seðlabanks kosti hvert einasta mannsbarn á Íslandi 650 þúsund krónur. Enn fremur segir í greininni, að kostnaðurinn við Icesave sé 6% af kostnaði skattgreiðenda vegna falls bankanna. Morgunblaðið, sem þessa dagana fer hamförum gegn Icesave í samvinnu við sálufélaga sína í Útvarpi Sögu hlýtur að leiðrétta þessar fullyrðingar Jóhanns Haukssonar blaðamanns í greininni í DV, – það er að segja ,ef þær eru rangar.
Úr mbl.is (23.03.2011): Maður sem ók á dráttarvél í umferðinni á fjölfarinni götu í höfuðborginni olli töfum á umferð. Hér hefði átt að tala um mann sem ók dráttarvél. Hann ók ekki á dráttarvél. Þetta er eiginlega hálfgerð aulavilla.
Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins (23.03.2011) var oftar en einu sinni talað um að kaupa skýringar, – í merkingunni að taka skýringar góðar og gildar. Ekki getur þetta orðalag talist til fyrirmyndar. Í þessum Kastljóssþætti voru tvö lítt skiljanleg innslög um legókubba og einhverskonar auglýsingastofu í kassa á hjólum. Það var svo meira en hjákátlegt, þegar fréttamaður Kastljóss vottaði kvikmyndafræðingi samúð vegna andláts Elizabethar Taylors eins og um náinn ættingja væri að ræða! Sami fréttamaður talaði um að meika það sem leikkona. Málfar af þessu tagi ætti ekki að heyrast í Ríkissjónvarpinu. Í Ríkisútvarpinu var sagt að ferill leikkonunnar hefði spannað hálfa öld. Ferill hennar hófst þegar hún var átta ára. og hún var sjötíu og níu ára þegar hún lést. Á sjö áratugum lék Elizabeth Taylor í sextíu kvikmyndum.
Mjög góður var Siglufjarðarpartur Kiljunnar (23.03.2011) og þar átti upptökustjórinn Ragnheiður Thorsteinsson mikinn þátt og góðan, eins og Egill að verðleikum nefndi Kiljulok. Efnið var skemmtilegt og framsetning þess með miklum ágætum. Takk.
Bakaríið Kornið er með heilsíðuauglýsingu í DV (23.03.2011). Þar er auglýst svokallað ,,Fermingartilboð”. Fermingartilboðið felur m.a. í sér ,,40 manna marsipansálmabók”. Það á sem sagt að kóróna ferminguna með því að éta sálmabókina. Það er ekki öll vitleysan eins, enda væri þá lítið gaman að lifa.
Skildu eftir svar