«

»

Fullt hús í Fútastovu

Það var fullt út úr  dyrum í Fútastovu  í morgun. Þangað komu  50-60 manns, –  fleiri komust ekki  fyrir með  góðu móti. Margir Íslendingar  voru í  hópnum og  meðal  Færeyinganna   voru   Íslandsvinir, Lögþingsmenn og  Högni Höydal utanríkisráðherra.  „Við vinnum „,  sögðu  Færeyingar áður en leikurinn byrjaði. Stemmingin var frábær.

Frakkarnir reyndust ofjarlar okkar. Við því er ekkert að segja.  Þótt við töpuðum  fyrir þeim  unnum  við  samt.

Afrek íslensku  handboltamannanna   er  stórkostlegt og allt  var þetta  þetta ógleymanleg upplifun.

Ekki þótti mér  verra  er ég uppgötvaði að  ég  átti frænda í liðinu, en þetta  er nú bara mont !

Það var mikið kaffi   drukkið í  sendiráðinu eins og  Færeyingar kalla  aðalræðisskrifstofuna í Fútastovu.  Held ég hafi  hellt  níu sinnum upp  á könnuna.

Sjá myndir hér til hliðar, –  ekki  nógu  glúrinn  til að koma þeim  inn í textann.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>