· Fréttastofa ríkisins í Efstaleiti básúnar ánægju Ólafs Ragnar Grímssonar með góða kjörsókn, en stingur yfirlýsingu fyrrverandi forseta Íslands Vigdísar Finnbogadóttur um afstöðu hennar til Icesave undir stól. Fréttstofan sýnir Vigdísi takmarkalausa fyrirlitningu. Þeir sem þessa ákvörðun tóku eru ekki starfi sínu vaxnir. Þetta eru svo vítaverð vinnubrögð að engu tali tekur. Stjórnendur Ríkisútvarpsins hafa með þessu gerst sekir um alvaraleg afglöp í starfi. Geta má sér þess til að þarna hafi hræðslan við ritstjóra Morgunblaðsins ráðið mestu um að fela afstöðu Vigdísar til Icesave fyrir þjóðinni. Ritstjóri Morgunblaðsins kallar nefnilega fréttastofu ríkisins Óðinsvé, þegar vel liggur á honum. Það þykir víst ekki mjög fyndið í Efstaleitinu.
Útsending dagskrár Rásar tvö í Ríkisútvarpinu var undarlega skrykkjótt undir morgun (08.04.2011). Veðurfregnum klukkan 04 30 seinkað um átta eða níu mínútur, það vantaði framan á veðurfréttirnar og svo kom langt hlé. Engin afsökunarbeiðni, eða skýring, – það er eins og kurteisi kosti peninga í Efstaleitinu, og þeir kvarta sífellt um blankheit. En eins og segir í auglýsingunni: Rás tvö, spennandi dagskrá. Þú veist aldrei hvað kemur næst.
Í fimmfréttum Ríkisútvarpsins var sagt: … fyrr í dag rændu sjóræningjar þýskt flutningaskip. Hér hefði átt að segja: … fyrr í dag rændu sjóræningjar þýsku flutningaskipi. Það er munur á því að ræna skip og ræna skipi. Í sama fréttatíma var sagt: Í tilkynningu frá Lífeyrissjóð verslunarmanna segir…. Hér hefði átt að beygja heiti lífeyrisssjóðsins og segja: Í tilkynningu frá Lífeyrissjóði verslunarmanna…. Í sexfréttum sama miðils var talað um reðasafn á Húsavík. Líklega hefði átt að tala um reðrasafn, því fleirtölumyndin reða fyrirfinnst ekki.
Rétt er að hrósa fréttastofu Ríkissjónvarpsins (08.04.2011) fyrir að segja fyrst fjölmiðla skýrt og skorinort frá því hvað vændiskaupamál kennarans á Akranesi í rauninni snerist um.
Fréttaþulir Stöðvar tvö eru sífellt að segja Molaskrifara að fara ekki langt. Hann er yfirleitt ekki að fara eitt eða neitt, þegar hann situr í makindum og horfir og hlustar á fréttir.
Kjörstaðir opna, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (08.04.2011). Hvað opna kjörstaðir, spyr Molaskrifari í hundraðasta sinn.
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
15/04/2011 at 11:58 (UTC 0)
Takk fyrir. Það hefur verið einhver stífla í kerfinu. Athugasemdir runnu inn í morgun.
Þorvaldur Sigurðsson skrifar:
10/04/2011 at 12:16 (UTC 0)
Er ekki hægt að skoða athugasemdir hér? Tæplega er það orðið svo að þú sért ekki virtur viðlits?
Elís Rúnarsson skrifar:
09/04/2011 at 19:29 (UTC 0)
Til hamingju með síðuna, alvöru bloggarar blogga á eigin, sjálfstæða síðu.