«

»

Hvað á að kalla það ?

Hvað á að kalla það, þegar alda  samúðar með  ljósmæðrum  rís með þjóðinni og nær allir  virðast á  einu máli um að leiðrétta beri laun þeirra  með tillitli  til menntunar og  fjölmargir  taka  fram að aðrar stéttir  geti  ekki byggt  kröfur á því hvernig  samið verði við  ljósmæður ?

Svo  er  samið  við ljósmæður  um verulega launahækkun komið mjög til móts  við  kröfur þeirra  og þá kemur hver  talsmaðurinn fram á  fætur  öðrum og  segir að  sjálfsagt sé   að allir  fái  sömu  launahækkun og ljósmæður fengu.

 Á nútímamáli ætti  sjálfsagt að segja: „Ég er ekki alveg  að skilja þetta“. En ég segi bara: Mér  er  ómögulegt að  skilja  þá   talsmenn fjölmennra samtaka  sem  fyrst   segja   að  samningar við ljósmæður geti  ekki  verið  fordæmi  fyrir aðra  hópa en  krefjast  svo  sömu hækkunar  og  ljósmæður  náðu  fram.

Kannski heitir  þetta  bara tvöfeldni.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>