«

»

Konan og kjötið

Auglýsing um ágæti  íslenska  lambakjötsins,  sem    birtist oft á  skjánum hefur orðið mér  umhugsunarefni.  Þar stendur maður  við kjötborð, bendir á lambakjöt  í borðinu og  segist ætla að kaupa það. Þar með  er  kominn á  samningur milli hans og   afgreiðslumannsins eða   verslunarinnar.Þá kemur   aðvífandi kona  sem  greinilega  væntir sín, hún   ágirnist  kjötið líka. Hún lætur   smápeninga  detta á  gólfið og  horfir  biðjandi augum á manninn og  biður hann    hjálpa sér    tína peningana upp, –  væntanlega  vegna þess að  hún á ekki auðvelt  með að beygja sig.Maðurinn bregst  vel  við og  tínir upp peningana og réttir henni. Þá  er hún  búin að kaupa  kjötið, sem hann varð  fyrri  til að biðja um. Konan heldur  svo  sigri  hrósandi á brott.Hver  er   boðskapur þessarar  auglýsingar (skilaboð segja  auglýsingastofur líklega að  enskri  málvenju) ?   Er ekki verið að segja  okkur  að það sé  í lagi að ljúga og  svíkja  til  að hafa sitt  fram?  Ég get ekki skilið þetta á annan veg.Þótt  konur   séu aldrei  fallegri en þegar  þær  bera barn undir  belti þá  finnst mér  þetta  bæði ógeðfelld og ómerkileg  auglýsing.Hvað er  verið að segja  börnum okkar með þessu  Hugsi nú hver fyrir sig. 

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Ísdrottningin skrifar:

    Ég er þér hjartanlega sammála.  Þær eru ansi margar auglýsingarnar sem eiga að sýna húmor en eru í raun að innræta óhörnuðu ungviðinu okkar að svik og prettir séu í lagi og jafnvel bara fyndið ef eitthvað.

    Mér finnst þetta léleg auglýsingasiðfræði.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>