«

»

Hélt að mér hefði misheyrst

Sannast  sagna hélt ég að mér  hefði misheyrst er ég heyrði  forseta Íslands  tala um „sovereign“ í  sambandi  við  fullveldisdaginn í  ræðu sem hann flutti við setningu  Alþingis  í  dag.

Mér  misheyrðist ekki.  Forseti  Íslands  sagði:

„Innan tíðar, 1. desember, verða 90 ár liðin frá því að þjóðin varð fullvalda

— „sovereign“ eins og það er nefnt á ýmsum tungum.“

„Sovereign“  er  enska orðið  yfir  fullveldi.  það er ekki talað  um „sovereign“ á  neinni tungu  nema  ensku  þótt  samstofna orð  sé  að   finna í  öðrum málum , „souveraine“ á  frönsku  og „souverän“ á þýsku ,  fari ég rétt með.

Forseti Íslands  þarf ekki að sletta ensku við setningu  Alþingis. 

mbl.is Færa þarf þjóðinni 1. desember á ný

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>