«

»

Molar um málfar og miðla 620

Það er því miður of  algengt að talað sé um tvær  dyr. Það gerir  eyjubloggari (02.06.2011) og segir:  Hér í Reykjavík eru dæmi um að fólk hafi tunnur sínar ofaní kjallara á bak við tvær læstar dyr,… Orðið  dyr er  fleirtöluorð. Þessvegna ætti að  tala um tvennar læstar dyr, ekki tvær. Tvennar buxur. Ekki tvær buxur. 

Ekki er víst að Staksteinahöfundur Morgunblaðsins hafi gert Ásmundi Einari Daðasyni,alþingismanni   greiða  með því að tala um hann sem hinn ,,unga og óspillta  þingmann”. Það gæti átt eftir  að festast við hann.

Úr dv.is  (02.06.20011) Hópurinn vakti mikla athygli, lagður upp við gangstéttina á Skúlagötu, á meðan lögreglan ræddi við vígalegan mannskapinn í kvöld. Lagði lögreglan hópinn upp við gangstéttina?  Ekki ber myndin sem fylgdi fréttinni  það með sér.  Hér skortir nokkuð á vandvirkni.

Úr mbl.is (02.06.2011): Ekki hefur tekist að landa samkomulagi um þinglok en þingflokksformenn funduðu oft í gær.  Það er einhverskonar tískuorðtak hjá  fjölmiðlamönnum nú um stundir að  tala um að landa einhverju, þegar eitthvað er í höfn. Öllum andsk. er nú orðið landað. Þarna hefði átt að tala um að ekki hefði  tekist að ná samkomulagi um þinglok, fremur en að landa  samkomulagi.

Eftir fjölþætta og ítarlega umfjöllun þeirra  Jóhannesar Kr. Kristjánssonar og Sigmars Guðmundssonar í Kastljósi um svokallað læknadóp virðist  kerfið seint og um síðir   vera að rumska. Það  þurfti spark, fast spark til að vekja þá sem áttu að  gæta þess að  kerfið væri ekki misnotað. Nú er búið að raska ró hliðvarðanna. Vonandi gæta þeir hliðanna betur en til þessa. Hrós  fyrir það, Jóhannes og  Sigmar.

Orðskrípið áhafnarmeðlimur er lífseigt. Það skýtur upp kollinum í  ágætu Sjómannadagsblaði, sem fylgdi Morgunblaðinu (01.06.2011) Orðið skipverji er gott og gilt.

Molaskrifari rakst á einkennilegt orð í stjörnuspá Morgunblaðsins (02.06.2011). Þar er  talað um vandamálalausnara!  Líklega er átt  við þann sem leyst getur vandamál.   

Í  Viðskiptablaði Morgunblaðsins (02.06.2011) er fjallað um  sparisjóðinn Byr. Þar segir í undirfyrirsögn:  Saksóknari krefst  fimm ára fangelsisdóms yfir  fyrrverandi sparisjóðsstjóra og stjórnarformanni sem og  fyrrverandi forstjóra MP banka. –  Sakaðir um að hafa valdið Byr tjóni sér og öðrum til hagsbóta. Það er ekki á íslensku fjárglæframennina logið. Mánuðum saman varði  Byr milljónum á milljónir ofan til að láta  poppstjörnu fjasa fram og til baka um svokallaða  fjárhagslega heilsu í sjónvarpsauglýsingum. Nú hefur komið í ljós að forráðamenn breyttu   þessum eitt sinn öfluga  sparisjóði í spilaborg blekkinga. Talinu um fjárhagslega heilsu var ætlað að slá ryki í almennings.

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Skúli Pálsson skrifar:

    Svo kemur fyrir að fólk vandar sig of mikið og segir „tvenn pör af skóm“.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>