Molavin sendi eftirfarandi (13.06.2011) „Bifreiðin skemmdist ekki mikið, en hann var ekki á númerum,“ sagði í 8-fréttum ríkisútvarpsins í morgun. Fréttaþulir höfðu þann sið lengst af að lesa handrit yfir áður en fréttalestur hófst. Og jafnvel að lesa yfir hausamótunum á fréttamönnum, sem létu óboðlegan texta frá sér. En nýjir siðir með nýjum herrum.” Rétt er það.
Ríkissjónvarpið sagði að flokkur tyrkneska forsætisráðherrans hefði ekki fengið hreinan meirihluta í kosningum um helgina. Stöð tvö sagði, að flokkurinn hefði fengið hreinan meirihluta, sem var rétt. Líklega ruglaði Ríkissjónvarpið saman hreinum meirihluta og auknum meirihluta – tveimur þriðju atkvæða, sem flokkurinn náði ekki.
Moggasnilld, mbl.is (13.06.2011): Að sögn varstjóra sást til mannanna hlaupa frá bifreiðinni í morgun og voru þeir því teknir höndum. Lögreglan segir að bifreiðin hafi ekki verið með nein bílnúmer. Þá sakaði engan í eldsvoðanum
Það var þakkarvert, að Ríkissjónvarpið skyldi á Hvítasunnudagskvöld sýna íslensku þjóðinni tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu, fimm vikum eftir að tónleikarnir fóru fram. Það var góð skemmtan og vandaður þáttur. Góð myndstjórn, góðar kynningar og viðtöl. Ríkissjónvarpið á hinsvegar að segja okkur satt. Þetta voru ekki opnunartónleikar eins og sagt var. Þetta voru þriðju tónleikarnir sem Sinfónían hélt í Hörpu. Frægt var að opnunartónleikunum mátti ekki sjónvarpa né taka upp. Upptaka tónleika númer tvö mun hafa misheppnast. Það var staðfest í þættinum sem Molaskrifari þóttist vita, að þetta voru þriðju tónleikarnir í Hörpu, sem Ríkissjónvarpið sýndi okkur. Þegar Víkingur Heiðar kynnti aukalagið, hið undur fallega lag Sigvalda Kaldalóns Ave María, í eign útsetningu sagði hann efnislega: Ég lék það í gærkveldi og líka í fyrrakvöld.
Þetta var fín dagskrá eftir allan fjárans fótboltann, fyrr um kvöldið. En hversvegna þurfti Ríkissjónvarpið að segja okkur ósatt ? Þetta voru ekki opnunartónleikarnir. Þeir liðu hjá ósýndir og voru aldrei skráðir í myndrænu formi. Það var miður.
Molaskrifari nefndi hér um daginn hvað Ríkissjónvarpið gerði betur við okkur en norrænu stöðvarnar, því okkur væri sagt á hverju kvöldi hver væri fréttastjóri Ríkissjónvarpsins, – norrænu stöðvarnar létu fréttastjóra ógetið. Nú hefur maður,sem gjörþekkir málið, bent Molaskrifara á, að þetta hafi ekki verið allskostar rétt því fréttastofur NRK og SVT greini áhorfendum frá því hver sé fréttastjóri. Hjá NRK er nafn fréttastjórans neðst í nafnarununni í fréttalok, ekki efst eins og hjá Ríkissjónvarpinu. Því fór það framhjá Molaskrifara. Fréttastofur DR og YLE nefna hinsvegar ekki fréttastjóra ekki á nafn. Rétt skal vera rétt.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Magnús skrifar:
16/06/2011 at 10:21 (UTC 0)
Það er virðingarvert að leiðbeina fólki varðandi íslenskt mál og veita fjölmiðlum aðhald á því sviði. Hins vegar er óþarfi að velta sér upp úr því þegar fólki verður fótaskortur eins og okkur getur öllum orðið. „Bifreiðin skemmdist ekki mikið en hann var ekki á númerum.“ Hér getur hugsast að fréttamaður hafi vitað að um jeppa hafi verið að ræða og því orðið þessi hræðilegu mistök á. Öllum getur orðið á. Í textanum frá Molavini er orðið „nýir“ skrifað með joði, „nýjir“.