«

»

Molar um málfar og miðla 634

Er það náttúrulögmál,  að  ekkert sé að marka auglýsta  tíma í dagskrá Ríkissjónvarpsins ?  Í gærkveldi (18.06.2011) hófst sýning kvikmyndarinnar Hestahvíslarans   rúmlega fimmtán  mínútum eftir auglýstan sýningartíma. Engin afsökun. Engin skýring. Auðvitað er þetta ekki náttúrulögmál. Þetta er bara subbuskapur, sem þekkist ekki hjá alvöru sjónvarpsstöðvum, en er látinn viðgangast Í Efstaleitinu þar sem  rekin er fótboltarás og vídeóleiga sem kölluð er  Ríkissjónvarp. Þeir sem  stjórna útsendingum Rásar eitt kunna á klukku. Þar er þess gætt að virða auglýsta tíma í dagskrá.

Fréttaskrifurum er ærinn vandi á höndum, þegar beygja skal kvenkynsorðið ær. Á vefnum mbl.is (18.06.2011) stendur: Ærinni og lömbum hennar heilsast vel eftir björgunina,… Hér hefði Molaskrifari haldið að ætti að standa: Ánni og lömbunum…. Ærin , um ána, frá ánni  til ærinnar.

Fossafansinn í Morsárjökli  er fín fyrirsögn á  mbl.is (17.06.2011).

Í fréttum Ríkisútvarpsins (16.06.2011) var  tekið svo  til orða  að nóg væri af hvali á  Eyjafirði.  Hvalur beygist: Hvalur, hval , hval, hvals. Hinsvegar hefði mátt segja, að mikið  væri um hvali á Eyjafirði um þessar mundir.  Í sama fréttatíma  var talað um vandamál sem viðloðandi vandamál. Molaskrifari kann ekki að meta það orðalag.

Við höfum verið að pikka upp breskt gos og spænskt gos og vatn, sagði forstjóri  ferðamiðlarans Iceland Express í samtali á vefnum visir.is (17.06.2011).

Sjónvarpað var frá hátíðarfundi Alþingis þar sem samþykkt var að stofna  prófessorsembætti til heiðurs  Jóni Sigurðssyni. Fyrir höfum við   embætti til heiðurs Árna  Magnússyni og Sigurði Nordal, en tímum ekki,  eða höfum ekki  rænu, á að  veita  fé til að launa  fólk í þessar stöður. Það verður eins með  prófessorsembættið kennt við Jón Sigurðsson. Það er  svona einnota, hátíðarheftiplástur  á  200 ára afmæli Jóns  Sigurðssonar. Á morgun verður málið gleymt. Svona gjörðir  eru sérkenni þessarar þjóðar. Halelúja í dag. Hjúpur gleymsku á morgun. Gott hjá Valgerði Bjarnadóttur að sitja hjá  við afgreiðslu málsins á þingi. Þetta er  svona  heldur lítilfjörleg sýndarmennska.

Það var ekki uppörvandi  að  heyra  forsætisráðherra  lesa  ræðu um Jón Sigurðsson á þessum þingfundi.  Ráðherrar eiga að flytja ræður, ekki lesa þær blæbrigðalaust eins og þurran  embættismannatexta úr kansellíinu.

Það er ómerkilegt, þegar menn eins og  Jón Valur Jensson blanda  Jóni  Sigurðssyni forseta aftur og aftur með ósmekklegum hætti inni í umræðu samtímans um ESB. Og geta  svo ekki einu sinni haft einkunnarorð  forseta, ,,Eigi víkja” rétt eftir.

Það hefur verið nefnt  hér áður, að það er einkennileg meinloka hjá  stjórnendum fréttastofu Ríkisútvarpsins að  allir fréttamenn geti verið fréttaþulir. Það er ekki þannig.  Sumir fréttamenn hafa  góða rödd  fyrir hljóðnema og hlustendur. Aðrir hafa það ekki,  en geta  engu að síður verið góðir fréttamenn. Þetta tvennt  þarf ekki að fara saman. Fréttastofan  heldur áfram að  láta fréttamenn lesa fréttir,sem  ekki eru áheyrilegir. Þetta er líklega gert eftir  reglunni: Það er vont,  en það venst. Það er vond vinnuregla í Ríkisútvarpi.

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Mér hugnast ekki eignarhald Mogga, Eyju eða Pressu. DV er kannski skömminni skást.

  2. Guðmundur skrifar:

    Það gerir mig leiðan að sjá þig á DV blogginu. Þú átt ekki heima þar sem neikvæðni og niðurbrot ræður ríkjum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>