«

»

Molar um málfar og miðla 639

Andstæðingar  aðildar Íslands að Evrópusambandinu eru  sumir  hverjir  ekki vandir að meðulum í málflutningi sínum.  Sumum þeirra er tamt að  vísa í orðfæri   sem  flestir tengja  við nazismann og tala um,,helför” og ,,lífsrými” . Staksteinahöfundur Morgunblaðsins vill ekki  vera eftirbátur þessara  manna. Í   Staksteinum (24.06.2011)  skrifar hann: Á Íslandi situr ríkisstjórn  með það sem sitt heilagasta verkefni að ná um borð á þriðja farrými hins evrópska Títanik áður en það  rekst á borgarísjakann. Þetta er einkar smekklegt.  Þegar  farþegaskipið Títanik sökk eftir að hafa siglt á ísjaka í apríl 1912  fórust 1517 manns. Títanik átti ekki að geta sokkið. Þetta  var og er eitt   mannskæðasta sjóslys  sögunnar. Staksteinahöfundur líkir  aukinni og náinni  samvinnu  Íslendinga   við Evrópuþjóðirnar við Títanikslysið. Vondur málstaður dregur  menn stundum niður í  svaðið í málflutningi,  þegar rök brestur.  Kannski hefur Staksteinahöfundur haft í huga, að  Ismay lávarður  forstjóri  skipafélagsins,sem átti Titanic, var farþegi á fyrsta farrými í ferðinni örlagaríku. Hann bjargaðist. Flestir þeirra sem fórust voru hinsvegar á þriðja farrými. Ismay lávarður var  einn  af hugmyndasmiðunum að baki  Titanic. Hann hannaði þessa útrás í  harðri samkeppni um farþega   á leið yfir Atlantshaf. Hann bjargaði sér eins og áður sagði.

Á  eyjan.is birtist nýlega bréf frá Bryndísi Schram til Styrmis Gunnarssonar. Bréfið birti Bryndís á  Eyjunni vegna þess að Morgunblaðið neitaði að birta það. Hér er tengill á  bréfið hennar Bryndísar: http://lugan.eyjan.is/2011/06/22/ad-vera-eda-vera-ekki-%E2%80%93-thad-er-spurningin/  Mikið verður gaman að sjá svarið hans Styrmis.

Úr mbl.is (23.06.2011): Sjósetning lítils kafbátar fór fram í morgun … Lítils kafbáts, hefði  þetta átt  að vera. Eignarfallsmyndin bátar er ekki til í málinu.

Bragð er að þá barnið finnur ,sem gamalt máltæki. Í  kynningu á  dagskrá Ríkissjónvarpins í hádegisútvarpi ( 23.06.2011) var talin ástæða  til að taka það sérstaklega fram, að sjónvarpsfréttir hæfust klukkan  sjö, – á venjulegum tíma. !

Það er góðra gjalda  vert, að  Ríkissjónvarpið skuli ætla að sýna nokkrar íslenskar kvikmyndir. Það er á hinn bóginn álitamál hvort sumarið sé  besti tíminn til slíkra  sýninga.  En það er  auðvitað ótækt  með öllu  að  láta  sýningu á íslenskri kvikmynd  hefjast á tólfta tímanum eins og   í gærkveldi  (23.06.2011). Þeir sem  raða   sjónvarpsdagskránni saman í Efstaleiti hafa greinilega  einkennilegar hugmyndir um að  hvenær  fólk  almennt  gengur til  hvílu á  kvöldin.  Það er ekki ein báran  stöð í Efstaleitinu.

Ingibjörg  Bragadóttir þakkar þessi pistlaskrif og segir um umfjöllun um  tunguna: ,,Manni rennur til rifja að Ríkisútvarpið skuli láta þetta sig jafn litlu skipta og raun ber vitni.
Málfarsráðunautur heyrir sögunni til og „ritskoðun“ þula virðist engin. Þó full þörf sé á.
Svo langar að minnast á þá sorglegu þróun sem orðið hefur í því að fullorðið fólk talar barnamál. T.d. segir það „að dingla bjöllu“ og „klessa á“, svo gáfulegt sem það er nú.
Þetta eru mörg börn alin upp við í dag.
Ótrúlega margt ungt fólk talar um heimalinga – ekki heimalninga.
Sama er að segja um útilegu sem gengur undir heitinu útileiga nú til dags.”  Molaskrifari þakkar Ingibjörgu sendinguna.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>